Aron Þór að tafli í Sanxenxo. Af Facebook-síðu mótsins.

Mai-bræðurnir Aron Þór (2033) og Alexander Oliver (1958) taka þátt í alþjóðlegu móti í Sanxenxo á Spáni sem hófst í gær.  Báðir unnu þeir mun stigalægri andstæðinga í fyrstu umferð.

Önnur umferð fer fram í dag. Báðir tefla þeir þá við stigahærri andstæðinga. Aron fær venesúelska alþjóðlega meistarann Daniel Eduardo Pulvett Marin (2455). Ritstjóri fær ekki séð að skákir frá mótinu séu sýndar beint.

 

- Auglýsing -