Hannes Hlífar Stefánsson að tafl í Reykjavíkurskákmótinu 2017. Mynd: Ómar Óskarsson.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2541) hefur 2½ vinning eftir fimm umferðir á alþjóðlega mótinu í Ceske Budejovice í Tékklandi. Hannes er í 4.-7. sæti. Í 4. og 5. umferð gerði hann jafntefli við heimamennina FIDE-meistararann Svatopluk Svoboda (2434) og stórmeistarann Leonid Voloshin (2383).

Árangur Hannesar má finna á Chess-Results.

Í sjöttu umferð, sem fram fer í dag, teflir hann við stórmeistarann Pavel Simacek (2490).  Hægt er að fylgjast með skákum Hannesar á Chess24 og reyndar á fleiri vefjum einnig.

Tíu skákmenn taka þátt og er meðalstigin eru 2463 skákstig. Hannes er næststigahæstur kepepnda.

- Auglýsing -