Fyrsta skák heimsmeistaraeinvígisins hófst núna kl. 12:30.
Bein útsending á FIDE-síðunni hófst kl. 12:15. Útsendingar þar eru í umsjón Viswanathan Anand og Anna Muzychuk auk Maurice Ashley.
Vert er einnig að benda á beinar útsendingar á Chess24 sem eru í umsjón Judit Polgar, Anish Giri og Tania Sadchev.

Tengill á útsendingar á Chess24
Chess.com er að sjálfsögðu einnig með beinar útsendingar. Þar ráða ríkjum Fabiano Caruana, Hou Yifan, Robert Hess og Danny Rensch.

Tengill á útsendingar á Chess.com
Bent er einnig á NRK fyrir þá sem vilja hafa útsendingu þar. Hægt er að nálgast áskrift í gegnum heimasíðu Vodafone.
Sjálfsagt eru til fleiri möguleikar til að fylgjast með einvíginu. Ritstjóri hvetur þá sem hafa upplýsingar um áhugaverðar útsendingar að senda upplýsingar þar um.












