Vignir að teflia í Nova Georcia. Mynd: Skák.is/Matjaz Loviscek

Fjórða og fimmta umferð fóru fram á Hit Open í Nova Gorcia í Slóveníu í gær. Í fyrri umferð dagsins gerði alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2452), jafntefli við Matthew Wadsworth (2423) í afar fjörugri skák sem innihélt drottningafórnir á báða bóga. Í seinni skákinni vann Vignir slóvenska FIDE-meistarann Jaka Brilej (2329).

Vignir er efstur með 4 vinninga og er efstur ásamt tveimur öðrum. Sjötta umferð fer fram í dag og hefst kl. 15. Þá teflir Vignir við sænska alþjóðlega meistarann Seo Jung Min (2516)

98 keppendur frá 23 löndum taka þátt í flokki Vignis. Þar á meðal 9 stórmeistarar.  Vignir er níundi í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 16.-22. september.

——

Jósef að tafli í Batumi,

Jósef Omarsson tekur þátt í HM ungmenna (u12) sem fram fer í Batumi í Georgíu 16.-27. september.

Hann vann hollenskan skákmann í 3. umferð í gær og hefur 1 vinning.

 

 

- Auglýsing -