Chess After Dark í samstarfi við Messann á Selfossi og á Lækjargötu heldur Íslandsmótið í atskák, laugardaginn 10. desember klukkan 13.00 á Selfossi!
Mótið verður haldið í Bankanum Vinnustofu.

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 10+3.

Aðeins er tekið við skráningu á netinu, ekki á staðnum.

Lokað verður fyrir skráningu í mótið föstudaginn, 9. desember kl. 23:59.

Sigurvegari mótsins hlýtur nafnbótina Atskákmeistari Íslands 2022. Núverandi Íslandsmeistari er stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson.

Í lok móts verður verðlaunaafhending/lokahóf sem fer fram sömuleiðis á Bankanum vinnustofu.

Aðalstyrktaraðili mótsins er Tómas Þóroddsson.

Verðlaun eru eftirfarandi:

  1. 100.000 krónur
    2.  50.000 krónur
    3.  25.000 krónur

U2000: 15.000 krónur
U1600: 15.000 krónur

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Þátttökugjöld: Fullorðnir, 3.000 kr, 17 ára og yngri, 2.000 kr.

Hlökkum til að sjá ykkur og hvetjum alla til að mæta!

Kær kveðja,

CAD bræður

 

- Auglýsing -