Smári Sigurðsson varð efstur með 4,5 vinninga á jólamóti Goðans sem fram fór á veitingastaðnum Hlöðufelli á Húsavík í gær. Sigur Smára var tæpur þar sem Kristján Ingi Smárason og Hermann Aðalsteinsson fengu einnig 4,5 vinninga en enduðu aðeins lægri á oddastigum.
Lokastaðan.
| 1. | Sigurdsson, Smari | 1879 | 4.5 |
| 2. | Smarason, Kristjan Ingi | 1368 | 4.5 |
| 3. | Adalsteinsson, Hermann | 1549 | 4.5 |
| 4. | Isleifsson, Runar | 1809 | 4.0 |
| 5. | Johannsson, Benedikt Thor | 3.5 | |
| 6. | Gulyas Adam Ferenc | 3.5 | |
| 7. | Birgisson, Hilmar Freyr | 1560 | 3.0 |
| 8. | Asmundsson, Sigurbjorn | 1461 | 2.5 |
| 9. | Akason, Aevar | 1516 | 2.0 |
| 10. | Thorgrimsson, Sigmundur | 2.0 | |
| 11. | Kotleva, Annija | 1.0 | |
| 12. | Lesman Dorian | 1.0 |
12 keppendur mættu til leiks og tefdlar voru 6 umferðir með tímamörkunum 10+2. Þetta var síðasti viðburður ársins 2023, en næst á dagskrá er Skáþing Goðans 2024 sem hefst í janúar og stendur fram í febrúar. Nánar um það síðar.
- Auglýsing -













