Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í dag mætti Oddgeir Ottesen frá KR.
Í kynningu um þáttinn segir:
Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR og framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga er gestur Kristjáns Arnar í þættinum. Þeir fara yfir mótaáætlun Skáksambands Íslands fyrir starfsárið 2025-26 og segja nýjustu fréttir af skákfréttavefnum skak.is en vetrarstarf talfélaganna í landinu er að hefjast núna í byrjun september. Má þar nefna undanrásir Íslandsmótsins í netskák í kvöld, Haustmót Taflfélags Reykjavíkur sem hefst 3. september og Skákþing Norðlendinga sem haldið verður um næstu helgi, 5.-7. september. Oddgeir ræðir barnastarfið hjá KR, segir frá þjálfurum félagsins og svo taka þeir félagar umræðu um Íslandsmót skákfélaga en fyrri hluti Íslandsmótsins hefur verið staðfestur dagana 13.-16. nóvember nk.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

















