Hrafn Jökulsson 1965-2022

Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson 22 nóvember á Aflagranda 40.

Í ár verður mótið með glæsilegra hætti, þar sem Hrafn hefði orðið 60 ára ef hann hefði lifað.

Búast má því við að nokkrir af ættingjum Hrafns komi á mótið.

Húsið opnar kl. 15:00, en mótið sjálft byrjar klukkan 16:00.

Settur verður upp minningarveggur eins og áður, með ýmsum myndum af Hrafni Jökulssyni.

Einnig verða gerðir 10 Minnispeningar í öskju.

Barmerki verða handa þeim sem vilja styrkja Minningarsjóðinn.

Verðlaunapeningar koma frá ÍsSpor og veitingar koma frá Bakarameistaranum og þakkar Vinaskákfélagið þeim sérstaklega fyrir.

Tefldar verða 9 umf., með 3 mín. + 2 sek.

Skákdómari verður Róbert Lagerman og mótstjóri verður Hörður Jónasson.

Þátttökugjald á mótið er 1.000 kr. fyrir fullorðna en 500 kr. fyrir börn undir 16 ára.

Glæsileg verðlaun verða á mótinu:

  1. sæti: Gull verðlaunapen. + 30,000 kr. (Fær áritað nafn sitt á glæsilega Hrafnsstyttu úr bronsi).
  2. sæti: Silfur verðlaunapen. + 20,000 kr.
  3. sæti. Bronse verðlaunapen. 10,000 kr.

65 ára og eldri: Gull verðlaunapen.

50 ára og eldri: Gull verðlaunapen.

Kvennaverðlaun: Gull verðlaunapen.

16 ára og yngri: Gull verðlaunapen.

Skráið ykkur sem fyrst!

Þegar skráðir menn: Minningarskákmót um Hrafn Jökulsson 2025

Einnig getið þið skráð ykkur á staðnum.

Allir velkomnir.

Gens una sumus – Við erum ein fjölskylda!

Skráning er á heimasíðu Vinaskákfélagsins: Glæsilegt Minningarskákmót Hrafns Jökulssonar 22 nóv. 2025

- Auglýsing -