Verðlaunhafar: Helgi Áss Gétarsson sigraði á Íslandsmótinu í hraðskák 2024 – Friðriks-mótinu svonefnda. Hér er Helgi í hópi annarra verðlaunahafa. Fremri röð f.v.: Birkir Ísak Jóhannsson, Davíð Kolka. Önnur röð f.v.: Stephan Briem, Örvar Hólm Brynjarsson og Lenka Ptacnikova. Efsta röð f.v.: Hilmir Freyr Heimisson, Helgi Áss og Gunnar Björnsson forseti SÍ. — Ljósmynd/Heimasíða Íslandsmótsins

Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák – fer fram í ár sem endranær! Teflt verður í nýlegum glæsilegum höfuðstöðvum bankans, Reykjastræti 6. Mótið fer fram sunnudaginn 7. desember og hefst kl. 13:00 og stendur til u.þ.b. kl. 17:00

Flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar taka þátt. Tímamörkin eru 3+2 og tefldar eru þrettán umferðir. 

Einum verðlaunum hefur verið bætt frá fyrra ári – viðbótar árangursverðlaunum sem eru nú þrenn.

SKRÁNING

Skráning fer eingöngu fram í Abler og er formið á Skák.is (guli kassinn til hægri). Þátttökugjöld eru 2.000 kr., fyrir alla nema stórmeistara sem frá frítt, og renna þau þátttökugjöldin alfarið í verðlaunapott mótsins.
Ekki verður hægt að skrá sig á skákstað.

Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst enda takmarkast þátttaka við um 100 manns. Gildir þar lögmálið, fyrstir koma, fyrstir fá.

Skráningarfrestur er til kl. 16:00, föstudaginn, 5. desember. Nauðsynlegt er einnig að staðfesta skráningu fyrir kl. 12:45 á skákstað.

Þetta er 22. árið í röð sem Landsbankinn og Skáksamband Íslands standa fyrir Friðriksmótinu í skák, en mótið er haldið til heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga.

 AÐALVERÐLAUN

Séu tveir eða fleiri jafnir í efsta sætinu verður stigaútreikningur* látinn ráða Íslandsmeistaratitlinum. Verðlaunafé skiptist eftir Hort-kerfinu. Aðeins verða veitt verðlaun til fimm efstu manna eftir stigaútreikning.

  1. 160.000
  2. 100.000
  3.   80.000
  4.   50.000
  5.   30.000

AUKAVERÐLAUN

  • Árangursverðlaun 2000+ (árangur í samanburði við eigin stig) – 25.000 kr.
  • Árangursverðlaun 1700-1999 (árangur í samanburði við eigin stig) 25.000 kr.
  • Árangursverðlaun u1700 (árangur í samanburði við eigin stig) – 25.000 kr.
  • Kvennaverðlaun – 25.000 kr.

Aukaverðlaun eru miðað við alþjóðleg hraðskákstig 1. desember sl. (alþjóðleg skákstig til vara hafi menn ekki alþjóðleg hraðskákstig). Stigaútreikningur ræður séu menn jafnir og efstir.

Vinni keppandi aðalverðlaun hefur hann ekki möguleika á aukaverðlaunum. Hver keppandi getur aðeins unnin ein aukaverðlaun.

Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

 FYRRI SIGURVEGARAR 

  • 2024 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2023 – Vignir Vatnar Stefánsson
  • 2022 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2021 – Helgi Ólafsson
  • 2020 – Hjörvar Steinn Grétarsson
  • 2019 – Jón Viktor Gunnarsson
  • 2018 – Jóhann Hjartarson
  • 2017 – Hannes Hlífar Stefánsson
  • 2016 – Jóhann Hjartarson
  • 2015 – Þröstur Þórhallsson
  • 2014 – Héðinn Steingrímsson
  • 2013 – Helgi Ólafsson
  • 2012 – Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
  • 2011 – Henrik Danielsen
  • 2010 – Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson
  • 2009 – Héðinn Steingrímsson
  • 2008 – Helgi Ólafsson
  • 2007 – Héðinn Steingrímsson
  • 2006 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2005 – Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 – Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson 

*Mótsstig reiknast svo

  1. Buchols -1
  2. Buchols
  3. Sonneborn-Berger
  4. Innbyrðis úrslit
  5. Flestir sigrar
- Auglýsing -