Afmælismót Friðriks Ólafssonar

    0
    102
    Hvenær:
    25. janúar, 2025 @ 14:00 – 17:00
    2025-01-25T14:00:00-01:00
    2025-01-25T17:00:00-01:00
    Hvar:
    Aflagrandi 40
    Aflagrandi 40
    108 Reykjavík
    Ísland
    Afmælismót Friðriks Ólafssonar @ Aflagrandi 40 | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt Afmælisskákmót Friðriks Ólafssonar laugardaginn 25 janúar klukkan 14:00 á Aflagranda 40.

    Friðrik Ólafsson verður 90 ára daginn eftir eða á sunnudaginn 26 janúar.

    Vinaskákfélagið mun halda þetta mót árlega og verður stórglæsilegur Farandbikar sem heitir “Friðriksbikarinn” sem sá sem vinnur fær nafn sitt skráð á hann.

    Við eigum kannski von á að Friðrik Ólafsson muni koma á mótið og leika fyrsta leikinn. Það mun koma í ljós þegar nær dregur.

    Gestir eru velkomnir!

    Tefldar verða 7 umf., með 4 mín + 2 sek.

    Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

    Skákdómari verður Róbert Lagerman og mótstjóri verður Hörður Jónasson.

    Þátttökugjald er 1.000 kr.

    Glæsileg verðlaun verða á mótinu.

    Verðlaun á mótið:

    1. sæti: Farandbikar + Gull verðl.pen. + 30,000 kr.
    2. sæti: Silfur verðl.pen. + 20,000 kr.
    3. sæti. Bronse verðl.pen. 10,000 kr.

    Kvennaverðlaun: Gull verðl.pen. + 10.000 kr.

    50 ára og eldri: Gull verðl.pen. + 10.000 kr.

    65 ára og eldri: Gull verðl.pen. + 10.000 kr.

    16 ára og yngri: Gull verðl.pen. + 10.000 kr.

    Starfsmenn á Aflagranda verða með kaffi, en Vinaskákfélagið kemur með 2 x 25 manna súkkulaðiköku. Stutt hlé verður svo eftir 4 umferðir svo skákmenn geti notið veitinganna sem best.

    Allir velkomnir.

    Hægt er að sjá hverjir hafi skráð sig hér:  Afmælisskákmót Friðriks Ólafssonar 2025

    Skráning er á heimasíðu félagsins: Afmaelisskakmot Fridriks Ólafssonar-2025/

    Einnig er hægt að skrá sig á staðnum.

    Mætið tímanlega.

    Kveðja stjórn Vinaskákfélagsins.

    - Auglýsing -