FRESTAÐ – Annað mót Brim-mótaraðarinnar

    0
    652
    Hvenær:
    7. ágúst, 2020 @ 19:30 – 9. ágúst, 2020 @ 18:00
    2020-08-07T19:30:00+00:00
    2020-08-09T18:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    4000
    FRESTAÐ - Annað mót Brim-mótaraðarinnar @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Ísland

    Annað mót Brim mótaraðarinnar verður haldið helgina 7.-9. ágúst næstkomandi, í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.

    Fyrirkomulag mótsins:

    Föstudagurinn 7. ágúst klukkan 19:30

    1.-4 umferð. Atskákir með tímamörkunum 15+5

    Laugardagurinn 8. ágúst klukkan 11: 5. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30

    Laugardagurinn 8. ágúst klukkan 17: 6. umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30

    Sunnudagurinn 9. ágúst klukkan 11: 7.umferð, kappskák með tímamörkunum 90+30.

     

    Eftir mótið verður haldið 9. umferða hraðskákmót með tímamörkunum 3+2. Miðað verður við að það hefjist klukkan 16 á sunnudeginum. Sigurvegari hraðskákmótsins fær aukastig í stigakeppninni.

     

    Þáttökugjöld: 4000kr.

    2000kr. fyrir 17 ára og yngri

    Ókeypis fyrir GM/IM og TR-inga 17 ára og yngri

    Verðlaunafé í mótinu:

    1. 15.000
    2. 10.000
    3. 8000

    Skráningarform

    Þegar skráðir keppendur

    Verðlaunasjóður fyrir samanlagðan árangur í mótunum sex:

    Heildarkeppnin:

    1. 125.000kr.
    2. 75.000kr.
    3. 50.000kr.

    Efsta skákkonan: 33.000kr.

    Efstur U1900 skákstigum, júní listinn 2020: 33.000kr.

    Efstur 17 ára og yngri: 33.000

    Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

    Oddastig (tiebreaks): 1. Buchholz (-1) 2. Buchholz 3. Innbyrðis úrslit 4. Sonneborn-Berger 5. Oftar svart.

     

    Stigakeppnin virkar þannig að stig eru veitt fyrir efstu 10. sætin. 1 stig fyrir 10. sæti, 2. stig fyrir 9. sæti og svo framvegis. Í 1. sæti í hverju móti verða hins vegar 12 stig veitt. Stigakeppnir  með sama sniði verða einnig notaðar til að reikna út aukaverðlaunin. Fjögur bestu mót hvers þáttakanda gilda í stigakeppninni

     

    Almenn Kynning á Mótaröðinni: 

     

    Taflfélag Reykjavíkur kynnir með stolti, í samstarfi með þremur félögum, Skákfélagi Akureyrar, Skákfélagi Selfoss og nágrennis og Skákfélaginu Hugin, BRIM Skákmótaröðina 2020!

    Haldin verða sex helgarskákmót, þrjú í TR, eitt á Norðurlandi, eitt á Selfossi og eitt á Húsavík. Á föstudegi verða tefldar fjórar atskákir, á laugardegi tvær kappskákir og á sunnudegi ein kappskák.

    Brim er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar ásamt Skáksambandi Íslands. Keppt verður um glæsileg verðlaun; 350.000 króna verðlaunasjóður er fyrir bestan samanlagðan árangur. Það verður stigakeppni þar sem fjögur bestu mót hvers skákmanns gilda.

    - Auglýsing -