FRESTAÐ: Atskákmót Reykjavíkur

    0
    213
    Hvenær:
    9. desember, 2024 @ 19:30 – 10. desember, 2024 @ 22:30
    2024-12-09T19:30:00-01:00
    2024-12-10T22:30:00-01:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Taflfélag Reykjavíkur
    FRESTAÐ: Atskákmót Reykjavíkur @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Vegna dræmrar þátttöku hefur verið ákveðið að fresta Atskákmóti Reykjavíkur og finna því betri dagsetningu sem hentar betur.

    *****************************************+

    Upprunaleg mótatilkynning:

    Atskákmót Reykjavíkur verður haldið í húsakynnum TR, Faxafeni 12, 9-10. desember næstkomandi. Tefldar verða níu skákir með tímamörkunum 10+5 (10 mínútur á skákina að viðbættum fimm sekúndum á hvern leik) á tveimur kvöldum.

    Fyrstu fimm umferðirnar verða mánudagskvöldið 9. desember klukkan 19:30 og síðustu fjórar verða þriðjudagskvöldið 10. desember klukkan 19:30. Seinni hluti mótsins, þriðjudagskvöldið, kemur í stað venjulegs Þriðjudagsmóts.

    Atskákmót Reykjavíkur var lengst af haldið af Skákfélaginu Helli, síðar Huginn, en síðan 2019 hefur TR séð um mótahaldið. Mótið var hér áður fyrr haldið af TR, en það var haldið fyrst árið 1992. Mótið er öllum opið. Núverandi atskákmeistari Reykjavíkur er Vignir Vatnar Stefánsson en árið áður var það Aleksandr Domalchuk-Jonasson. Atskákmeistarar Reykjavíkur frá upphafi.

    SKRÁNINGARFORM

    Þegar skráðir keppendur

    Þátttökugjöld:

    Fullorðnir: 3000 kr. 17 ára og yngri: 1500 kr. Stórmeistarar borga ekki þátttökugjöld.

    Verðlaun:

    1. 30.000.-
    2. 20.000.-
    3. 10.000.-

    - Auglýsing -