Barna- og unglingaæfingar Breiðabliks – Áskorendaflokkur

    0
    12767
    Hvenær:
    22. mars, 2019 @ 16:00 – 17:30
    2019-03-22T16:00:00+00:00
    2019-03-22T17:30:00+00:00
    Hvar:
    Kópavogsvöllur
    Dalsmári 9-11, Kópavogur
    Iceland
    Barna- og unglingaæfingar Breiðabliks - Áskorendaflokkur

    Áskorendaflokkur (erfiðleikastig 1100-1600 elóstig):
    Boðið er upp á æfingatíma í stúkunni við Kópavogsvöll fyrir grunnskólakrakka sem hafa náð þó nokkuri færni og reynslu í skák og yfirleytt komin með skákstig.

    • Þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá 16:00 – 17:30. – stúkan við Kópavogsvöll.

    Þjálfarar: Davíð Kolka og Heimir Páll Ragnarsson

    Fyrsta æfing er fimmtudaginn 6.september
    Síðasta æfing fyrir jólafrí verður föstudaginn 7.desember.
    Fyrsta æfing eftir áramót verður föstudaginn 4.janúar
    Páskafrí mánudag 15.apríl – mánudags 22.apríl.
    Síðasta æfing fyrir sumarfrí verður fimmtudaginn 10.mai
    Frí er á æfingum alla hátíðisdaga. (fim 25.apríl: Sumardagurinn fyrsti, mið 1.mai: Verkalýðsdagurinn)

    Best er að iðkandi sé í þeim flokki sem hentar hans færni, en það er samt alveg leyfilegt að mæta í aðra æfingatíma ef það hentar t.d. betur í stundaskrána.

    Æfingarnar henta skákkrökkum sem hafa mikinn áhuga og vilja æfa skák oft í viku til að stefna að því að verða í fremstu röð á Íslandi og að standa sig með sóma á alþjóðlegum barna- og unglingaskákmótum.

    Hver iðkandi velur sér eins margar æfingar í viku og henta honum. Einnig verður hægt að velja um að mæta seinna og fara fyrr ef tíminn t.d. rekst á aðrar tómstundir.
    Iðkendur utan Kópavogs og í hvaða taflfélagi sem er eru velkomnir. Allir geta mætt í nokkur skipti til að prófa án æfingagjalds.

    - Auglýsing -