Friðrikssyrpa T.R. III

    0
    227
    Hvenær:
    13. febrúar, 2026 @ 17:30 – 15. febrúar, 2026 @ 18:00
    2026-02-13T17:30:00-01:00
    2026-02-15T18:00:00-01:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Friðrikssyrpa T.R. III @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Helgina (13-15 febrúar) fer fram mót í Friðrikssyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur (bikarsyrpa). Þetta er þriðja mótið af fimm sem haldið er á tímabilinu 2025-26. Tefldar verða 7 skákir yfir þessa þrjá daga. Fer mótið fram í Taflfélagi Reykjavíkur Faxfeni 12.

    Þriðja mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 13. febrúar og stendur til sunnudagsins 15. febrúar. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.

    Dagskrá:

    1. umferð: 13. október kl. 17.30 (fös)

    2. umferð: 14. febrúar kl. 9.00 (lau)

    3. umferð: 14. febrúar kl. 13.00 (lau)

    4. umferð: 14. febrúar kl. 16.00 (lau)

    5. umferð: 15. febrúar kl. 10.00 (sun)

    6. umferð: 15. febrúar kl. 13.00 (sun)

    7. umferð: 15. febrúar kl. 16.00 (sun)

    Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni 7. umferð.

    Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Merkja skal við fyrirhugaðar yfirsetur í neðangreindu skráningarformi. Annars skal tilkynna skákstjóra um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

    Nánar um yfirsetur.

    Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 15 mínútum eftir að viðkomandi umferð hefst.

    Þátttökugjald í mótið er 2.000kr. Börn sem eru félagar í TR greiða 1.000 Kr.

    Systkinaafsláttur er 25%

    Hægt er að greiða á staðnum eða millifæra á reikninginn: 0101-26-640269 Kennitala: 640269-7669

    Tilkynning á taflfelag@taflfelag.is Skýring: Bikarsyrpa

    Sigurvegari hvers móts sem og efsta stúlkan hljóta að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sæti og 3. sæti. Veglegur farandbikar verður veittur næsta vor fyrir besta samanlagðan árangur í mótum vetrarins og gilda þá mest fjögur mót. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir besta samanlagðan árangur (fjögur mót) fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sæti gefur 5 einkatíma, 2. sæti gefur 3 einkatíma og 3. sæti gefur 2 einkatíma.

    Skráning fer eingöngu fram í gegnum skráningarform hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur!

    Skráningarform:

    Þegar skráðir keppendur: Bikarsyrpa III (13-15 feb)

    - Auglýsing -