Hraðskákmót stúlkna í Ými

    0
    111
    Hvenær:
    3. febrúar, 2023 @ 15:00 – 18:00
    2023-02-03T15:00:00-01:00
    2023-02-03T18:00:00-01:00
    Hvar:
    Siglingaklúbburinn Ýmir
    Naustavör 18
    200 Kópavogur
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Hraðskákmót stúlkna í Ými @ Siglingaklúbburinn Ýmir | Kópavogur | Ísland
    • Síðasta mótið í fyrstu mótaröð stúlkna verður haldið á vegum Skákskóla Íslands föstudaginn 3. febrúar nk. í húsnæði Siglingaklúbbsins Ýmis við Naustavör í Kópavogi. Mótið hefst kl. 15. Fyrsta mótið í mötaröðinni var haldið á þessum stað í mars í fyrra og er viðeigandi að loka mótaröðinni á sama stað. Annað mót fór fram í Hörpunni í apríl, samhliða Reykjavíkurskákmótinu, þriðja mótið í Vestmannaeyjum í maí og það fjórða á Hotel Berjaya, þ.e. gamla Loftleiðahótelinu, samhliða heimsmeistaramótinu í Fischer-slembiskák

      Tefldar verða 9 umferðir eftir svissneska kerfinu og tímamörk eru 5 3 Bronstein. Verðlaun verða með sama sniði og í fyrri mótum þ.e. ferðavinningar auk verðlauna frá Chessable.

      Fyrir liggur að sigurvegari mótaraðarinnar er Iðunn Helgadóttur og verða henni afhent sérstök verðlaun í mótslok. Verðlaunaflokkur meðal yngri keppenda miðast áfram við stúlkur sem fæddar eru 2012 og síðar.

      Staðan í mótaröðinni er þessi:

      1. Iðunn Helgadóttir 75 stig
      2. Guðrún Fanney Briem 42 stig
      3. Freyja Birkisdóttir 35 stig
      4. Katrín María Jónsdóttir 26 stig.
      5. – 7. Emilía Embla Berglindardóttir, Tara Líf Ingadóttir og Þórhildur Helgadóttir 24 stig
      6. Hrafndís Karen Óskarsdóttir 22 stig
      7. Sigrún Tara Sigurðardóttir 18 stig
      8. Silja Rún Jónsdóttir 8 stig.
      9. Sóley Kría Helgadóttir 6 stig
      10. Nikola Klimazewska 4 stig.
      11. – 14. Margrét Kristín Einarsdóttir og Halldóra Jónsdóttir 2 stig.

      Gefin eru 20 stig fyrir sigur, 15 stig fyrir 2. sæti, 12 stig fyrir 3. sæti, 10 stig fyrir 4. sæti, 8 stig fyrir 5. sæti, 6 stig fyrir 6. sæti, 4 stig fyrir 7. sæti og 2 stig fyrir 8. sæti.

      Verðlaun:

      1. verðlaun: Ferðavinningur að verðmæti kr. 40 þús.
      2. verðlaun: Ferðavinningur að verðmæti kr. 30 þús.
      3. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár eða Chessable forrit.
      4. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár eða Chessable forrit.
      5. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár eða Chessable forrit.

      Keppendur fæddar árið 2012 og síðar:

      1. verðlaun: Ferðavinningur að verðmæt kr. 30 þús.
      2. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár eða Chessable forrit.
      3. verðlaun: Demantsáskrift að Chess.com í eitt ár eða Chessable forrit.

      Mótið er opið öllu stúlkum á grunn- og framhaldsskólaaldri og eru taflfélög hvött til þess að kynna mótið fyrir stúlkum.

    - Auglýsing -