112 Reykjavík
Ísland
Íslandsmót barnaskólasveita, 1.-3. bekkur, fer fram í Rimaskóla, sunnudaginn, 9. maí. Mótið verður teflt í samræmi við núverandi sóttvarnareglur sem leyfa aðeins 50 manns í hverju hólfi í íþróttakeppni.
Aðeins er hægt að leyfa eina sveit frá hverjum skóla. Skipt verður í tvö hólf og tvær efstu sveitirnar úr hvorum riðli tefli um sigurinn í sérstakri úrslitakeppni. Verði núverandi reglur rýmkaðar er möguleiki á að b-sveitir geti einnig tekið þátt.
Umhugsunartími 5+2 á hvern keppenda og má gera ráð fyrir 7-9 umferðum auk úrslitakeppni fyrir efstu sveitir.
Mótið hefst kl. 11 og áætlað er að því ljúki með verðlaunaafhendingu á milli 13 og 14..
Einn liðsstjóri getur fylgt hverri sveit. Áhorfendur mega hins vegar ekki koma inn í skólahúsnæðið og ekki er hægt að bjóða upp á veitingar. Foreldrar eru því hvattir til að nesta krakkana.
Þátttökugjöld kr. 7.500.- á sveit. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjár sveitirnar og efstu þrjár landsbyggðarsveitirnar.
Núverandi Íslandsmeistari barnaskólasveita (1.-3. bekkur) er Lindaskóli. Nánar um mótið í fyrra hér.
- Skráningarform (lýkur á hádegi, 12:00, föstudaginn, 7. maí)
- Þegar skráðar sveitir