46W4+83J
Rósarimi 11, 112 Reykjavík
Ísland

Mótið fer fram sunnudaginn 30. mars í Rimaskóla og hefst kl. 13. Mæting kl. 12:45. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Áætlað er að mótinu ljúki um kl. 17.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 8.-10. bekk en þó er nemendum úr í 1.–7. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.
Þátttökugjöld kr. 12.000 kr.- á sveit. Þó ekki hærra en 24.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.
Íslandsmeistararnir hljóta rétt til þátttöku á Norðurlandamóti grunnskólasveita sem fram fer í Finnlandi í október.
Lindaskóli varð Íslandsmeistari grunnskólasveita í fyrra. Sjá nánar um mótið hér.
Skráningu skal lokið í síðasta lagi kl. 16, fimmtudaginn 27. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.
- Skráningarform
- Þegar skráðar sveitir
- Chess-Results