Íslandsmót barnaskólasveita, 4.-7. bekkur

    0
    508
    Mótið fer fram í Rimaskóla.
    Hvenær:
    29. mars, 2025 @ 13:00 – 17:00
    2025-03-29T13:00:00-01:00
    2025-03-29T17:00:00-01:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    46W4+83J
    Rósarimi 11, 112 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    12000
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    5689141
    Íslandsmót barnaskólasveita, 4.-7. bekkur @ Rimaskóli | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Það verður (skóla)skákveisla helgina 29. og 30. mars 2025. Þá fara fram tvö skólaskákmót í Rimaskóla. Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkur) fer fram laugardaginn, 29. mars, og Íslandsmót grunnskólasveita (8.-10. bekkur) fer fram sunnudaginn, 30. mars.

    Athygli er vakin á því að yngri nemendur geta mögulega teflt á báðum mótunum.  

    ÍSLANDSMÓT BARNASKÓLASVEITA (4.-7 BEKKUR)

    Mótið fer fram laugardaginn, 29. mars  í Rimaskóla og hefst kl. 13. Mæting kl. 12:45. Tefldar verða átta umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Mótinu ætti að vera lokið um kl. 17.

    Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 4.–7. bekk en þó er nemendum úr í 1.–3. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.

    Þátttökugjöld kr. 12.000 kr.- á  sveit. Þó ekki hærra en 24.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.

    Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.

    Íslandsmeistararnir hljóta rétt til þátttöku á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer í Finnlandi í september.

    Lindaskóli varð Íslandsmeistari barnaskólasveita í fyrra. Sjá nánar um mótið hér.

    Skráningu skal lokið í síðasta lagi kl. 16, fimmtudaginn 27. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.

    - Auglýsing -