Íslandsmót ungmenna (u8-u16)

    0
    530
    Hvenær:
    2. nóvember, 2024 @ 13:00 – 17:00
    2024-11-02T13:00:00-01:00
    2024-11-02T17:00:00-01:00
    Hvar:
    Miðgarður
    Vetrarbraut 18
    210 Garðabær
    Ísland
    Gjald:
    2000
    Íslandsmót ungmenna (u8-u16) @ Miðgarður | Garðabær | Garðabær | Ísland

    Íslandsmót ungmenna (u8-u16) fer fram laugardaginn 2. nóvember í hinu nýja glæsilega íþróttahúsi Miðgarði í Garðabæ. Sunnudaginn, 3. nóvember fer fram Íslandsmót barna- og unglingasveita.

    Mótið hefst kl. 13  og er teflt í fimm aldursflokkum. Keppendur skulu mæta eigi síðar en kl. 12:40 og staðfesta mætingu. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm.

    Afar góð verðlaun verða í boði. Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2025 sem fram fer í Hörpu.

    8 ára og yngri (f. 2016 og síðar)

    Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

    9-10 ára (f. 2014 og 2015)

    Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.

    11–12 ára (f. 2012 og 2013)

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 2.

    13–14 ára (f. 2010 og 2011)

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.

    15–16 ára (f. 2008 og 2009)

    Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5. 

    Skráning og greiðsla þátttökugjalda 

    SportAbler – skráning uppfærist daglega á Chess-Results

    Skráningafrestur rennur út föstudaginn, 1. nóvember kl. 13

    Verðlaun

    Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasætum gilda oddastig. Þó skal tefld aukakeppni um Íslandsmeistaratitla í þremur elstu aldursflokknum.

    Verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni í hverjum flokki.

    Allir Íslandsmeistarar frá frí þátttökugjöld á Reykjavíkurskákmótið 2025

    Áskriftir frá Chessable og/eða Chess.com meðal verðlauna.

    Þrír efstu í öllum flokkum fá verðlaunabikar.

    Allir keppendur verða leystir út með smá glaðningi.

    Þátttökugjöld eru kr. 2.000 kr. Systkinaafsláttur er 25%.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskák- eða hraðskákstiga eftir því sem við á.

     Nánar um oddastig

    Allir við alla: 1. Sonneborn-Berger, 2. Innbyrðis úrslit, 3. Fjöldi sigra 4. Hlutkesti

    Opnir flokkar: 1. Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi vinningsskáka 6. hlutkesti

    - Auglýsing -