Borgarbraut 6
Stykkishólmur
Ísland
Íslandsmótið í atskák haldið í Stykkishólmi dagana 17. og 18. nóvember nk.
Íslandsmótið í atskák verður haldið í haldið í Amtbókasafninu í Stykkishólmi helgina 17. og 18. nóvember nk. Tefldar verða tíu umferðir og hefst taflmennskan kl. 13 báða dagana.
Tímamörk
20 mínútur + 5 sekúnda viðbótartími á hvern leik.
Dagskrá
- Laugardaginn, 17. nóvember kl. 13:00-1800; Umferðir 1-5
- Sunnudagurinn, 18. nóvember, kl. 13:00-18:00; Umferðir 6-10
Aðalverðlaun
- 100.000
- 75.000
- 50.000
- 25.000
Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfinu séu menn jafnir. Aðeins fjórir efstu keppendurnir eftir stigútreikning fá verðlaun.
Mótsstig
Verði tveir eða fleiri keppendur efstir og jafnir skal teflt til þrautar með umhugsunartímanum 3+2. Stuðst er fyrirkomulag nr. 12.1.1.k í FIDE-keppnisreglum verði teflt um titilinn: https://www.fide.com/fide/handbook.html?id=187&view=article.
Um öll önnur verðlaun og sæti gilda eftirfarandi mótsstig:
- Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi sigra
Aukverðlaun
- Kvennaverðlaun: 10.000
- Unglingaverðlaun: 2003 eða síðar
- Öldungaverðlaun: 1954 eða fyrr
- Besti árangur miðað við eigin atskákstig (2000+)
- Besti árangur miðað við eigin atskákstig (2000-)
Hver keppandi getur aðeins fengið ein aukaverðlaun og skulu þau vera valin í þessari röð. Keppendur sem fá aðalverðlaun geta ekki fengið aukaverðlaun. Séu tveir eða fleiri keppendur jafnir er stuðst við mótsstig.
Hafi keppendur ekki alþjóðleg atskákstig eru stuðst við hefðbundin alþjóðleg skákstig.
Skákstig
Mótið er reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Þátttökugjöld
- 5.000 kr.
- Frítt fyrir stórmeistara og alþjóðlega meistara
- 50% afsláttur fyrir unglinga 16 ára og yngri og FIDE-meistara.
- 40% afsláttur fyrir þá sem panta gistingu hjá Harbour Hostel
Þátttökugjöld skal leggja inn á reikning 101-26-12763 fyrir mót eða greiða með reiðufé á mótsstað fyrir fyrstu umferð.
Skráning
Guli kassinn á www.skak.is.
Gistilboð hjá Harbour Hostel
dbl herbergi 12000 kr.
4ra manna fjölskylduherbergi 18000 kr.
4ra manna dorm 16000 kr.
12 manna dorm 3000 kr. rúmið
2ja manna dorm 8000 kr.
Skákstjóri
IA Róbert Lagerman, chesslion@hotmail.com.