
Íslandsmótið í netskák hefst þann 10. nóvember. Alls verða tefld 8 mót og munu 5 bestu mótin gilda til stiga. Lokamótið, sem fram fer þann 29. desember, gildir tvöfalt, þannig að það er tilvalið að taka þann dag frá strax!
Notast er við tímamörkin 4+2 og eru tefldar 9 umferðir í hverju móti.
Það er Skákfélagið Huginn sem stendur fyrir mótinu.
Hvernig tek ég þátt?
Það eina sem keppendur þurfa að gera er að vera í Team Iceland. Flestir eru þar nú þegar og kunna vonandi á þetta. Nýliðar fara á síðu liðsins á chess.com og smella á join. Allir geta tekið þátt!
https://www.chess.com/club/team-iceland
Staðan
VERÐLAUN Í MÓTASERÍUNNI ERU ÞANNIG:
- sæti 15.000 kr.
- sæti 9.000 kr
- sæti 6.000 kr
AUKAVERÐLAUN Í FIMM FLOKKUM:
Aukaverðlaun verða í formi Demants áskriftaraðgangs á Chess.com
Demantsaðgangur veitir fullan aðgang að allri þjónustu vefsins. Sem dæmi má nefna byrjanagagnagrunn, skákþrautir, ýmiskonar skákkennsla, myndbönd og fleira.
Undir 2100 skákstigum (miðað við FIDE stig þann 1. nóvember):
- 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
- 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur
Undir 1800 skákstigum (miðað við FIDE stig þann 1. nóvember):
- 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
- 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur
Unglingaverðlaun (15 ára og yngri):
- 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
- 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur
Kvennaverðlaun:
- 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
- 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur
Eldri skákmenn (60 ára og eldri):
- 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
- 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur
ÍSLANDSMEISTARAR Í NETSKÁK
- 2019 – ???
- 2018 – Féll niður
- 2017 – Féll niður
- 2016 – Jón Kristinn Þorgeirsson
- 2015 – Davíð Kjartansson
- 2014 – Davíð Kjartansson
- 2013 – Bragi Þorfinnsson
- 2012 – Davíð Kjartansson
- 2011 – Davíð Kjartansson
- 2010 – Davíð Kjartansson
- 2009 – Jón Viktor Gunnarsson
- 2008 – Arnar E. Gunnarsson
- 2007 – Stefán Kristjánsson
- 2006 – Snorri G. Bergsson
- 2005 – Arnar E. Gunnarsson
- 2004 – Stefán Kristjánsson
- 2003 – Arnar E. Gunnarsson
- 2002 – Arnar E. Gunnarsson
- 2001 – Helgi Áss Grétarsson
- 2000 – Stefán Kristjánsson
- 1999 – Davíð Kjartansson
- 1998 – Róbert Lagerman
- 1997 – Benedikt Jónasson
- 1996 – Þráinn Vigfússon