Íslandsmótið í skák 2023 – áskorendaflokkur

    0
    459
    Hvenær:
    26. ágúst, 2023 @ 13:00 – 3. september, 2023 @ 18:00
    2023-08-26T13:00:00+00:00
    2023-09-03T18:00:00+00:00
    Hvar:
    Faxafen 12
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    10000
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    Íslandsmótið í skák 2023 - áskorendaflokkur @ Faxafen 12 | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák (Skákþings Íslands) fer fram við í skákhöll Faxafeni 12, 26. ágúst – 3. september. Áskorendaflokkur er opinn öllum.

    Verðlaun

    1. 100.000 kr.
    2.   60.000 kr.
    3.   40.000 kr

    Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi séu menn efstir í verðlaunasætum í áskorendaflokki. Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í landsliðsflokki árið 2024. Oddastigaútreikningur* ræður lokaröð sæta.

    Umferðartafla

    1. Laugardagurinn, 26. ágúst kl. 13:00
    2. Sunnudagurinn, 27. ágúst, kl 13:00
    3. Mánudagurinn, 28. ágúst, kl. 18:30
    4. Þriðjudagurinn, 29. ágúst, kl. 18:30
    5. Miðvikudagurinn, 30. ágúst, kl. 18:30
    6. Fimmtudagurinn, 31. ágúst, kl. 18:30
    7. Föstudagurinn, 1. september, kl. 13:00
    8. Laugardagurinn, 2. september, kl. 13:00
    9. Sunnudagurinn, 3. september, kl. 13:00

    Þátttökugjöld

    Þátttökugjöld eru 10.000 kr. Unglingar 16 ára og yngri (2007 og síðar) fá 50% afslátt. Titilhafar aðrir en CM/WCM fá frí þátttökugjöld.

    Skráning

    Skráning fer eingöngu fram á gula kassanum á Skák.is. Ekki verður hægt að skrá sig til leiks á skákstað. Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn, 24. ágúst kl. 23:59. Þátttökugjöld skal leggja inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409.

    Tímamörk

    90 mínútur + 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik.

    Skákstjórn

    Yfirdómari mótsins veður IA Róbert Lagerman.

    Yfirsetur

    Hægt er að taka tvær yfirsetur í umferðum 1-7 og fá fyrir hana hálfan vinning. Óska þarf eftir yfirsetunni fyrir lok umferðarinnar á undan á sannarlegan hátt.

    *Oddastig

    • Flestar tefldar skákir
    • Bucholz -1
    • Bucholz 
    • Sonnoborn-Berger
    • Innbyrðis úrslit
    • Hlutkesti

     

    - Auglýsing -