á Nesjavallaleið
SKÁKDEILD KR efnir til sinnar árlegu sumarhátíðar og skákmóts við Selvatn, fimmtudaginn 11. júlí nk. Mótið sem nú er fer fram í 13. sinn verður með sérstöku viðhafnarsniði í tilefni þess að Skákdeildin fagnar senn 20. ára afmæli sínu. Hátíðarkvöldverður frá Eldhúsi Sælkerans verður reiddur fram undir beru lofti. Kaffi og kruðerí í boði á meðan á móti stendur.
Mótið sem er öllum opið hefst kl. 16.30 og stendur fram eftir kvöldi. Þátttaka takmarkast þó við að hámarki 40 keppendur.
Þátttökugjald kr. 10.000* Allur ágóði rennur til efla fjárhag skákklúbbsins, sem rekur starfssemi allt árið um kring og sendir tvær sveitir til keppni í Deildakeppninni í skák. Tefldar verða 11 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma.
Þar sem keppendafjöldi er takmarkaður er áríðandi að þeir sem hafa hug á að vera með tilkynni þátttöku sína sem allra fyrst. Annað hvort með tölvupósti til kr.skak@gmail.com eða með SMS-í síma: 893-0010 (GRK) eða 690-2000 (ESE)
Sértilboð til skákkvenna – 2 fyrir 1
Til að flýta fyrir óskast þátttökugjaldið greitt fyrirfram inn á reikning 115-26-47077, kt. 470776-0139 en ella með reiðufé á staðnum.
Skákstjóri: Guðfinnur R. Kjartansson
Mótsstjóri: Einar S. Einarsson