Reykjavíkurmótið í skólaskák

    0
    220

    Reykjavíkurmót í skólaskák fer fram mánudaginn 7. apríl í Taflfélagi Reykjavíkur að Faxafeni 12.

    Teflt verður í einstaklingsflokkum 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppnisrétt hafa þeir krakkar í reykvískum grunnskólum sem teflt hafa með a-sveit síns skóla í einhverri af sveitakeppnum þessa skólaárs. Auk þess hafa allir krakkar úr reykvískum skólum, og með skákstig, keppnisrétt. Telji skákkennarar/aðstandendur einhverja sem falla ekki undir ofangreind skilyrði eiga erindi á mótið er velkomið að senda fyrirspurn á mótsstjóra.

    Dagskrá:

    1.-4. bekkur: 16:30–18:30

    5.-7. bekkur: 19:00-21:00

    8.-10. bekkur 19:00-21:00 (samtímis 5.-7. bekk)

    Mótsstjóri: Gauti Páll Jónsson (gauti.pall.jonsson@reykjavik.is)

    ATH: Mæting og staðfesting þátttöku er í síðasta lagi 10 mínútum áður en mótið hefst.

    Þátttökugjöld eru 1000kr. á mann og greiðist á skákstað. Það er posi á staðnum.

    Umferðarfjöldi og tímamörk verða endanlega ákveðin þegar skráning liggur fyrir en má gera ráð fyrir 7 umferðum í hverjum flokki með umhugsunartíma 5+3.

    Skráningarfrestur er til 22:00 sunnudaginn 6. apríl 

    Efstu þrjú í hverjum flokki hljóta keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák.

    Birnukaffi verður á sínum stað á meðan mótinu stendur! 

    Skráningarform 

    Þegar skráðir 

    - Auglýsing -