Skákmót öðlinga 2023

    0
    549
    Hvenær:
    15. febrúar, 2023 @ 18:30 – 27. mars, 2023 @ 22:30
    2023-02-15T18:30:00-01:00
    2023-03-27T22:30:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    5000
    Tengiliður:
    Skákmót öðlinga 2023 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Ísland

    Skákmót öðlinga 40 ára og eldri (fædd 1983 og fyr) hefst miðvikudaginn 15. febrúar kl. 18.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Núverandi Skákmeistari öðlinga er Davíð Kjartansson.

    Athugið að lokaumferðin fer fram á mánudegi því Reykjavík Open hefst á miðvikudeginum í lokaviku mótsins.

    Dagskrá 
    1. umferð miðvikudag 15. febrúar kl. 18.30
    2. umferð miðvikudag 22. febrúar kl. 18.30
    3. umferð miðvikudag 1. mars kl. 18.30
    4. umferð miðvikudag 8. mars kl. 18.30
    5. umferð miðvikudag 15. mars kl. 18.30
    6. umferð miðvikudag 22. mars kl. 18.30
    7. umferð mánudag 27. mars kl. 18.30

    Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað 30 mínútum eða meira eftir upphaf umferðar.

    Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Láta skal skákstjóra vita um yfirsetu við upphaf umferðarinnar á undan.

    Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 5. apríl kl. 18:30 og að því loknu fer þar fram verðlaunaafhending fyrir bæði mót. Keppt er um veglegan farandbikar, en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

    Tímamörk í mótinu
    90 mín + 30 sek viðbót eftir hvern leik

    Verðlaun í mótinu
    1. sæti kr. 40.000
    2. sæti kr. 20.000
    3. sæti kr. 10.000

    Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks).

    Oddastig: 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart

    Þátttökugjald (greiðist með reiðufé við upphaf móts) eða lagt inn á reikning félagsins.

    kr. 5.000

    Skákstjórn: Auglýst síðar. Bendum á taflfelag@taflfelag.is

    Skráningarform 

    Þegar skráðir

    - Auglýsing -