Bikarsyrpa stúlkna nr. 2

    0
    175
    Keppendur á stúlknamótinu í Hörpunni
    Hvenær:
    19. janúar, 2025 @ 13:00 – 16:00
    2025-01-19T13:00:00-01:00
    2025-01-19T16:00:00-01:00
    Hvar:
    Aflagrandi 40
    Aflagrandi 40
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Kvennskáknefnd SÍ
    Bikarsyrpa stúlkna nr. 2 @ Aflagrandi 40 | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Annað mótið í bikarsyrpu stúlkna fer fram sunnudaginn 19. janúar kl. 13. Það er Kvennaskáknefnd Skáksambands Íslands sem stendur fyrir mótaröðinni, í samstarfi við skákfélög. Mót syrpunnar verða fjögur talsins og tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska kerfinu með tímamörkunum 5 3 á skák.

    Mæting var með besta móti í fyrsta mót bikarsyrpunnar þegar 22 stúlkur mættu til leiks. Í það skiptið fór Emilía Embla B. Berglindardóttir með sigur af hólmi í eldri flokki á meðan Marey Kjartansdóttir hreppti efsta sætið í yngri flokki.

    Annað mótið er unnið í samvinnu við Skákdeild KR, og fer fram í Samfélagshúsinu, Aflagranda 40. Mótið er opið öllum stúlkum á grunnskólaaldri, og teflt verður í tveimur flokkum ef þátttaka leyfir: 1.-4. bekkur og 5.-10. bekkur. Hressing verður í boði um miðbik móts.

    Verðlaun í eldri flokki:

    1. verðlaun: 3 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk áskriftar á vignirvatnar.is
    2. verðlaun: 2 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk áskriftar á vignirvatnar.is
    3. verðlaun: Áskrift hjá vignirvatnar.is

    Verðlaun í yngri flokki:

    1. verðlaun: 3 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk áskriftar á chess.com
    2. verðlaun: 2 einkatímar hjá Skákskóla Íslands auk áskriftar á chess.com
    3. verðlaun: Demantaáskrift á chess.com

    Að auki verða skemmtilegir happdrættisvinningar í báðum flokkum! Markmið mótaraðarinnar er að efla tengingu milli stúlkna á höfuðborgarsvæðinu og út á landi. Vegleg verðlaun verða veitt samanlögðum sigurvegurum mótaraðarinnar við lok 4. móts. Dagsetning þriðja mótsins í mótaröðinni liggur ekki fyrir en þó er ljóst að það fer fram í kringum Reykjavik Open í fyrri hluta apríl!

    Skráning fer fram í gegnum skráningarform hér að neðan. Hlökkum til að sjá ykkur!

    Skráningarform

    - Auglýsing -