Sumarmót Vinaskákfélagsins 2025

    0
    271
    Hvenær:
    7. júlí, 2025 @ 13:00 – 15:15
    2025-07-07T13:00:00+00:00
    2025-07-07T15:15:00+00:00
    Hvar:
    Vin Dagsetur
    Hverfisgata 47
    101 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Hörður Jónasson
    7774477
    Sumarmót Vinaskákfélagsins 2025 @ Vin Dagsetur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Hið árlega sumarskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið mánudaginn 7 júlí 2025, kl: 13, í Vin að Hverfisgötu 47. Teflt verður úti og inni, en ef það rignir, þá frestast skákmótið til mánudagsins 14 júlí.

    Mótið heitir „Sumarmót Vinaskákfélagsins 2025“.

    Undirtitill: „Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák 2024“.

    Tefldar verða 6 umferðir með 4 mín. + 2 sek., á skák.

    Ef tveir verða efstir og jafnir, þá keppa þeir til úrslita um sigurinn í „bráðabana“, þar sem hvítur hefur 5 mínútur og svartur 4 mínútur og nægir svörtum jafntefli til að vinna.

    Einnig er keppt um það hver verður Hraðskákmeistari Vinaskákfélagsins 2025.

    Skákdómari er Róbert Lagerman og mótstjóri er Hörður Jónasson.

    Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

    Þátttökugjald er 1.000 kr. Unglingar borga 500 kr.

    Frítt fyrir félaga í Vinaskákfélaginu.

    Í hléi verður boðið upp á kaffi og köku.

    Aðalverðlaun:

    1. Sæti. Gull verðlaunapeningur + 15.000 kr.
    2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + 10.000 kr.
    3. Sæti. Brons verðlaunapeningur + 5.000 kr.

    Verðlaun félaga í Vinaskákfélaginu:

    1. Sæti. Áritun á Farandbikar + gull verðlaunapeningur + skákbók.
    2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + skákbók.
    3. Sæti. Brons verðlaunapeningur + skákbók.

    Skráningarform er inn á heimasíðu félagsins: https://www.vinaskak.is/sumarmot-vinaskakfelagsins-2025/

    Þegar skráðir skákmenn: Sumarmót Vinaskákfélagsins 2025

    Allir velkomnir!!

    - Auglýsing -