Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland
![Þriðjudagsmót TR @ TR | Reykjavík | Ísland](https://skak.is/wp-content/uploads/2018/06/Taflfelag-Reykjavikur-Nota-med-frettum.png)
Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Arnar Ingi Njarðarson og Gauti Páll Jónsson.
Þátttökugjald eru eftirfarandi:
Félagsmenn TR 18 ára og eldri: 500kr.
Félagsmenn TR 17 ára og yngri: Ókeypis
Utanfélagsmenn 18 ára og eldri: 1000kr.
Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.
Utanfélagsmenn: 10 skipta klippikort: 7500kr.
Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).
Heimilisfang / Adress: https://ja.is/taflfelag-reykjavikur-skakheimili/