Gisting / Accomodation

Á Blönduósi eru nokkrir staðir sem bjóða upp á gistingu og hefur Skáksambandið
samið við Hótel Blönduós og Glaðheima um sérstakt tilboð fyrir þá sem sækja mótið
heim.

Á heimasíðu Prónjagleði má finna gott yfirlit yfir gististaði í Blönduósi og nágrennis.

Nánar hér

———————–

Hótel Blönduós er staðsett í Gamla Bænum og rekur jafnframt veitingastað og bar.
Þau bjóða upp á ýmis tilboð fyrir skákgesti á meðan á mótinu stendur og í
aðdraganda þess. Tilboðin verða auglýst nánar síðar. Á boðstólnum verður meðal
annars sérstakur skákseðill, hamingjustund og fleira skemmtilegt og hagstætt.
Hótelið mun verða miðpunktur mótsins og er t.d. Krúttið þar sem mótið fer fram
einungis 29,5 skrefum frá anddyri hótelsins. Morgunverðar- og veitingasalur
hótelsins er á jarðhæðinni líkt og móttaka hótelsins. Á sama svæði, eða uppi á palli
er barinn Sýslumaðurinn staðsettur og þar munu lifandi skáklýsingar fara fram.
Sýslumaðurinn og veitingasalurinn verður opinn í takt við dagskrá mótsins.
Mitt á milli Hótel Blönduós og Krúttsins er Apótekarastofan þar sem hægt verður að
næla sér í léttan bita, súpur, kaffi og léttar veitingar.

Á Blönduósi er einnig Eþíópískur veitingastaður sem heitir Teni og höfum við viðrað
það við rekstraraðila þar að vera með sérstök skáktilboð sem verða kynnt síðar. Rétt
við þjóðveginn er svo veitingastaðurinn B&S sem bíður upp á rétti dagsins ásamt
góðu úrvali af allskyns góðgæti. Rekstraraðilar þar tóku líka vel í það að bjóða upp á
sérstök tilboð og sérstakan skákseðil fyrir mótsgesti og verða þau tilboð sömuleiðis
kynnt síðar.

————————

Glaðheimar eru staðsettir hægra megin við þjóðveginn við N1 og bjóða þeir uppá
nokkrar tegundir húsa í gistingu fyrir allt að 8 manns saman í bústað. Verð á gistingu
fyrir 7 nætur er allt frá 49.000 kr á mann, allt eftir því hvaða gisting er valin.
Hér að neðan má sjá sundurliðun á verðum hjá Hótel Blönduósi og Glaðheimum.

Innifalið í verði hjá Hótelinu er morgunverður og er veittur 5% auka afsláttur sé bókað
fyrir 31.mars n.k. Jafnframt þarf að ljúka við bókun hjá Glaðheimum fyrir 31.mars þar
sem húsin eru frátekin á sérverðum fyrir Skáksambandið.

Athugið að þessi verð eru í gildi til 31.mars og gildir hin gamla tugga, fyrstur kemur fyrstur fær!

 

************* IN ENGLISH ****************

In Blönduós, there are several places offering accommodation, and the Icelandic Chess Federation has arranged a special offer with Hótel Blönduós and Glaðheimar for those attending the tournament.

Hótel Blönduós is located in the Old Town and also operates a restaurant and bar. They will offer various deals for chess guests during and leading up to the tournament. The offers will be announced later. Among other things, there will be a special chess menu, a happy hour, and other enjoyable and affordable options. The hotel will be the central hub of the tournament, and for example, Krúttið, where the tournament takes place, is only 29.5 steps from the hotel entrance. The breakfast and dining hall are on the ground floor, along with the hotel reception. In the same area, or on the upper level, is the bar “Sýslumaðurinn,” where live chess commentary will be held. Sýslumaðurinn and the dining hall will be open in accordance with the tournament schedule.

Between Hótel Blönduós and Krúttið is Apótekarastofan, where guests can grab a light meal, soups, coffee, and snacks.

Blönduós also has an Ethiopian restaurant called Teni, and we have discussed with its operators the possibility of offering special chess deals, which will be announced later. Right by the main road is the restaurant B&S, which serves daily specials along with a great selection of various treats. The operators there have also agreed to offer special deals and a dedicated chess menu for tournament guests, which will also be announced later.

Glaðheimar is located on the right side of the main road near the N1 gas station and offers various types of accommodation for up to 8 people per cabin. The price for a 7-night stay starts at 49,000 ISK per person, depending on the type of accommodation chosen.

Below, you will find a breakdown of prices at Hótel Blönduós and Glaðheimar. Breakfast is included in the price at the hotel, and a 5% additional discount is available for bookings made before March 31st. Likewise, bookings at Glaðheimar must be completed by March 31st, as the cabins are reserved at special rates for the Icelandic Chess Federation.

Facebook Comments Box