
Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2024-25 fer fram dagana 27. febrúar – 2. mars nk. Teflt er í Rimaskóla.
Úrvalsdeildin verður tefld frá fimmtudegi til sunnudags. Aðrar deildir verða tefldar á laugardag og sunnudag.
Tímasetning | Úrvalsdeild | Aðrar deildir |
Fimmtud., 27. feb. kl. 19:00 | 6. umf. | |
Föstud., 28. feb. kl. 19:00 | 7. umf. | |
Laugard., 1. mars, kl. 11:00 | 8. umf. | 5. umf. |
Laugard., 1. mars, kl. 17:30 | 9. umf. | 6. umf. |
Sunnud., 2. mars, kl. 11:00 | 10. umf. | 7. umf. |
Í úrvalsdeild verða tímamörkin 90 mínútur á fyrstu 40 leikina auk þess sem 15 mínútur bætast við á hvorn keppenda eftir 40 leiki + 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik. Í öðrum deildum verður umhugsunartíminn hefðbundin eða 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími eftir hvern leik.
Opið er fyrir félagaskipti þeirra sem ekki tefldu í fyrri hlutanum til 7. febrúar nk. Þessi regla á þó eingöngu um þá sem hafa lögheimilli hérlendis og/eða hafa íslenskan ríkisborgararétt. Þeir sem eru utan taflfélaga (og tefldu ekki í fyrri hlutanum) og eru án alþjóðlegra kappskákstiga geta þó ávallt skráð sig í félag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skáklög Skáksambands Íslands (12. grein)
- Reglugerð um Íslandsmót skákfélaga