REGLUGERÐ UM ÍSLANDSMÓT BARNASKÓLA 4. – 7. BEKKUR
1. grein.
Skáksamband Íslands heldur árlega Íslandsmót barnaskóla 4. – 7. bekkur á tímabilinu febrúar til maí. Keppnin er sveitakeppni og er öllum barnaskólum heimil þátttaka. Stjórn S.Í. er heimilt að fela aðildarfélögum þess , barnaskólum eða öðrum viðeigandi aðilum mótshaldið til lengri eða skemmri tíma.
2. grein.
Í hverri sveit skulu vera fjórir aðal keppendur auk 0-3 til vara. Keppendur skulu vera í 4. – 7. bekk. Keppendur í 1. – 3. bekk hvers skóla mega tefla upp fyrir sig á þessu Íslandsmóti en aðeins með a-sveit skólans.
Óheimilt er að færa keppendur á milli sveita til dæmis úr b-sveit yfir í a-sveit. Keppendum skal raðað á fyrsta til fjórða borð eftir skákstyrkleika. Við mat á skákstyrkleika skal hafa hliðsjón af skákstigum og árangri í opinberum skákmótum. Enginn keppandi má tefla fleiri en eina skák í sömu umferð.
Sé augljóslega brotið gegn ofangreindum reglum hefur skákstjóri heimild til að dæma skákir tapaðar eða beita öðrum úrræðum til úrbóta.
3. grein
Farið er eftir skákreglum FIDE. Ef undantekning er gerð á þeim skal mótshaldari tilkynna um það við upphaf mótsins.
4. grein.
Keppnisfyrirkomulag á Íslandsmótinu skal vera þannig að tefldar skulu 6-9 umferðir eftir svissnesku kerfi. Ef þátttaka er of lítil fyrir svissneskt kerfi ákveður mótshaldari fyrirkomulag.
5. grein.
Stefnt skal að því að Íslandsmót barnaskóla fari fram á einni helgi til að auðvelda þátttöku sveita víðs vegar að af landinu.
6. grein.
Verði tvær eða fleiri sveitir jafnar og efstar að vinningum skal fara fram sérstök aukakeppni milli þeirra um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrirkomulag þeirrar aukakeppni skal ákveðið af mótshaldara hverju sinni.
7. grein.
Sigursveitin hlýtur rétt til þátttöku í Norðurlandamóti barnaskólasveita í skák sem fer fram að hausti.
8. grein
Eins og fram kemur í lögum FIDE þá er utanaðkomandi aðilum (aðrir keppendur, liðstjórar, foreldrar, áhorfendur ..) óheimilt að hafa áhrif á gang einstakra skáka á neinn hátt. Dæmi um slík óheimil inngrip eru: gefa vísbendingar um leiki, láta vita um fall á tíma, ráðleggingar um jafnteflisboð eða uppgjöf o.s.frv.
Skákstjóra er heimilt að refsa þeirri sveit sem hagnast á brotinu með viðeigandi hætti. Við ítrekuð brot er skákstjóra heimilt að vísa sveit úr móti.
9. grein
Leitast skal eftir því sveitir frá sama skóla tefli innbyrðis í fyrstu umferð. Sveitir frá sama skóla geta ekki teflt innbyrðis í síðustu umferð séu þær í baráttu um verðlaun.
Samþykkt af stjórn SÍ í mars 2016.