{"id":2619,"date":"2023-02-22T14:41:24","date_gmt":"2023-02-22T14:41:24","guid":{"rendered":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/2023\/02\/22\/fyrirkomulag-opinbers-studnings-vid-skakhreyfinguna-meginefni-tillagna-stjornar-si\/"},"modified":"2023-02-22T14:41:24","modified_gmt":"2023-02-22T14:41:24","slug":"fyrirkomulag-opinbers-studnings-vid-skakhreyfinguna-meginefni-tillagna-stjornar-si","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/2023\/02\/22\/fyrirkomulag-opinbers-studnings-vid-skakhreyfinguna-meginefni-tillagna-stjornar-si\/","title":{"rendered":"Fyrirkomulag opinbers stu\u00f0nings vi\u00f0 sk\u00e1khreyfinguna &#8211; meginefni tillagna stj\u00f3rnar S\u00cd"},"content":{"rendered":"<p>Eftirfarandi t\u00f6lvup\u00f3stur var sendur fyrr \u00ed dag til ne\u00f0angreindra a\u00f0ila.<\/p>\n<ul>\n<li>A\u00f0ildarf\u00e9laga Sk\u00e1ksambands \u00cdslands<\/li>\n<li>Atvinnust\u00f3rmeistara<\/li>\n<li>F\u00e9lag \u00edslenskra st\u00f3rmeistara<\/li>\n<li>Sk\u00f3lastj\u00f3ra og stj\u00f3rnar Sk\u00e1ksk\u00f3la \u00cdslands<\/li>\n<li>Stj\u00f3rnar Launasj\u00f3\u00f0s \u00ed sk\u00e1k<\/li>\n<li>Formenn fastanefnda S\u00cd<\/li>\n<\/ul>\n<p>Me\u00f0fylgjandi eru meginefni tillagna Sk\u00e1ksambandsins sem ver\u00f0ur skila\u00f0 til r\u00e1\u00f0uneytisins \u00ed byrjun mars 2023.<\/p>\n<p>Ykkur er gefin kost \u00e1 koma \u00e1 framf\u00e6ri athugasemdum og \u00e1bendingum fyrir \u00feann t\u00edma ef \u00fei\u00f0 telji\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0u til.<\/p>\n<p>F.h. stj\u00f3rnar S\u00cd<br \/>\nGunnar Bj\u00f6rnsson<\/p>\n<p>\u00d6\u00f0rum en ofangreindum stendur jafnframt til bo\u00f0a a\u00f0 koma athugasemdum og \u00e1bendingum \u00e1 framf\u00e6ri.<\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/skak.is\/wp-content\/uploads\/2023\/02\/Tillogur-stjornar-SI-til-raduneytis.pdf\">PDF-vi\u00f0hengi<\/a><\/p>\n<p>&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8212;&#8211;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Fyrirkomulag opinbers stu\u00f0nings vi\u00f0 sk\u00e1khreyfinguna<\/strong><\/p>\n<p>Eins og kunnugt er hefur mennta- og barnam\u00e1lar\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 l\u00fdst eindregnum vilja til a\u00f0 innlei\u00f0a breytingar \u00e1 fyrirkomulagi styrkveitinga r\u00edkisins til sk\u00e1khreyfingarinnar og hefur beint \u00fev\u00ed til Sk\u00e1ksambands \u00cdslands (S\u00cd) a\u00f0 m\u00f3ta heildst\u00e6\u00f0a till\u00f6gu a\u00f0 n\u00fdju fyrirkomulagi.\u00a0\u00cd kj\u00f6lfar \u00feess var birt fr\u00e9tt \u00e1<a href=\"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/2022\/12\/02\/fyrirkomulag-opinbers-studnings-vid-skakhreyfinguna\/\"> skak.is<\/a> og br\u00e9f sent hagsmunaa\u00f0ila innan sk\u00e1khreyfingarinnar og \u00f3ska\u00f0 eftir ums\u00f6gnum. N\u00edu umsagnir b\u00e1rust.<\/p>\n<p>Eftirfarandi a\u00f0ilar sendu umsagnir<\/p>\n<ul>\n<li>\u00c1skell \u00d6rn K\u00e1rason, forma\u00f0ur Sk\u00e1kf\u00e9lags Akureyrar<\/li>\n<li>Bj\u00f6rn \u00cdvar Karlsson, sk\u00e1k\u00fej\u00e1lfari<\/li>\n<li>Gu\u00f0mundur Kjartansson og Hannes Hl\u00edfar Stef\u00e1nsson, st\u00f3rmeistarar \u00ed sk\u00e1k<\/li>\n<li>Helgi \u00d3lafsson, sk\u00f3lastj\u00f3ri Sk\u00e1ksk\u00f3la \u00cdslands og st\u00f3rmeistari \u00ed sk\u00e1k<\/li>\n<li>H\u00e9\u00f0inn Steingr\u00edmsson, st\u00f3rmeistari \u00ed sk\u00e1k<\/li>\n<li>Hj\u00f6rvar Steinn Gr\u00e9tarsson, st\u00f3rmeistari \u00ed sk\u00e1k<\/li>\n<li>Lenka Pt\u00e1cn\u00edkov\u00e1, st\u00f3rmeistari kvenna \u00ed sk\u00e1k<\/li>\n<li>R\u00edkhar\u00f0ur Sveinsson, f.h. Taflf\u00e9lags Reykjav\u00edkur<\/li>\n<li>Stj\u00f3rn Launasj\u00f3\u00f0s st\u00f3rmeistara<\/li>\n<\/ul>\n<p>Stj\u00f3rn Sk\u00e1ksamband \u00cdslands hefur yfirfari\u00f0 umsagnirnar og teki\u00f0 mi\u00f0 af \u00feeim vi\u00f0 m\u00f3tun tillagna.<\/p>\n<p><strong>Markmi\u00f0 breytinga<\/strong><\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00fe\u00e1 endursko\u00f0un sem n\u00fa stendur fyrir dyrum telur stj\u00f3rn Sk\u00e1ksamband \u00cdslands r\u00e9tt a\u00f0 hafa eftirfarandi markmi\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si:<\/p>\n<ul>\n<li>Umgj\u00f6r\u00f0 afreksstarfs au\u00f0veldi okkar fremsta sk\u00e1kf\u00f3lki a\u00f0 h\u00e1marka \u00e1rangur sinn.<\/li>\n<li>Kerfi\u00f0 au\u00f0veldi efnilegu sk\u00e1kf\u00f3lki a\u00f0 komast \u00ed fremstu r\u00f6\u00f0.<\/li>\n<li>Vi\u00f0haldi\u00f0 ver\u00f0i hvata til a\u00f0 n\u00e1 st\u00f3rmeistaratitli en jafnframt innleiddir hvatar til a\u00f0 n\u00e1 frekari \u00e1rangri \u00ed framhaldi af \u00fev\u00ed.<\/li>\n<li>Sveigjanleiki kerfisins ver\u00f0i aukinn hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0ar a\u00f0 forgangsra\u00f0a fj\u00e1rmunum \u00ed \u00fe\u00e1gu sk\u00e1kmanna sem s\u00fdna fram \u00e1 g\u00f3\u00f0an \u00e1rangur og framfarir.<strong>\u00a0<\/strong><\/li>\n<\/ul>\n<p><strong>Till\u00f6gur S\u00cd til til mennta- og barnam\u00e1lar\u00e1\u00f0uneytisins<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 grundvelli \u00feeirra markmi\u00f0a sem a\u00f0 framan var l\u00fdst og me\u00f0 hli\u00f0sj\u00f3n af ums\u00f6gnunum sem fram komu leggur stj\u00f3rn Sk\u00e1ksambands \u00cdslands til \u00fe\u00e6r breytingar sem l\u00fdst er h\u00e9r \u00e1 eftir. L\u00f6g\u00f0 er \u00e1hersla \u00e1 a\u00f0 till\u00f6gurnar eru settar fram \u00e1 \u00feeirri forsendu a\u00f0 breytingar sem innleiddar ver\u00f0a lei\u00f0i ekki til sker\u00f0inga \u00e1 framl\u00f6gum r\u00edkisins til sk\u00e1khreyfingarinnar, sbr. \u00fea\u00f0 sem fram hefur komi\u00f0 \u00ed samt\u00f6lum vi\u00f0 r\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 \u00fear a\u00f0 l\u00fatandi. Tryggja \u00fearf \u00e1framhaldandi festu og fyrirsj\u00e1anleika hva\u00f0 var\u00f0ar hin opinberu framl\u00f6g, \u00feannig a\u00f0 \u00feau ver\u00f0i ekki um of h\u00e1\u00f0 stefnu og \u00e1herslum stj\u00f3rnvalda \u00e1 hverjum t\u00edma.<\/p>\n<p><strong>Sk\u00e1ksamband \u00cdslands<\/strong><\/p>\n<ul>\n<li>Stj\u00f3rn Sk\u00e1ksambands \u00cdslands setji sk\u00fdra afreksstefnu. V\u00e6ntanlega ver\u00f0a megin markmi\u00f0in a\u00f0 auka sk\u00e1k\u00e1huga \u00e1 \u00cdslandi, efla okkar sterkustu landsli\u00f0 og a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 framfarir efnilegs sk\u00e1kf\u00f3lks.<\/li>\n<li>\u00c1fram ver\u00f0i veittir r\u00edkisstyrkir til sambandsins \u00e1 grundvelli samninga.<\/li>\n<li>Sk\u00e1ksk\u00f3li \u00cdslands ver\u00f0i \u00e1fram starfr\u00e6ktur \u00e1 vegum sambandsins<\/li>\n<\/ul>\n<p><strong>Sk\u00e1ksk\u00f3li \u00cdslands<\/strong><\/p>\n<ul>\n<li>Sk\u00e1ksk\u00f3linn leggi megin\u00e1herslu \u00e1 afrekskennslu en eftirl\u00e1ti taflf\u00e9l\u00f6gum landsins a\u00f0 mestu byrjendakennslu. \u00cd tengslum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 breytingu ver\u00f0i skipting sk\u00f3lans \u00ed almenna deild og framhaldsdeild afnumin.<\/li>\n<li>Sk\u00e1ksk\u00f3li \u00cdslands sinni m.a. \u00fatbrei\u00f0slustarfi \u00e1 landsbygg\u00f0inni.<\/li>\n<li>Sk\u00e1ksk\u00f3linn ver\u00f0i \u00ed g\u00f3\u00f0u samstarfi\u00f0 vi\u00f0 taflf\u00e9l\u00f6g landsins.\u00b4<\/li>\n<li>Kennsluskylda atvinnust\u00f3rmeistara vi\u00f0 sk\u00f3lann ver\u00f0i afnumin en h\u00e1\u00f0 ver\u00f0i samkomulagi hverju sinni hvort \u00feeir kenni vi\u00f0 sk\u00f3lann.<\/li>\n<\/ul>\n<p><strong>Launasj\u00f3\u00f0ur st\u00f3rmeistara<\/strong><\/p>\n<p>A\u00f0 mati stj\u00f3rnar S\u00cd er mikilsvert a\u00f0 til sta\u00f0ar s\u00e9 sj\u00f3\u00f0ur sem gerir sterkasta sk\u00e1kf\u00f3lki landsins kleift a\u00f0 helga sig sk\u00e1klistinni, eins og veri\u00f0 hefur \u00ed li\u00f0lega 30 \u00e1r. \u00dea\u00f0 felur \u00ed s\u00e9r hvata til \u00feess a\u00f0 n\u00e1 st\u00f3rmeistaratitli og eykur um lei\u00f0 m\u00f6guleikana \u00e1 a\u00f0 n\u00e1 enn frekari \u00e1rangri, enda krefst \u00fea\u00f0 t\u00edmafrekrar og kostna\u00f0arsamrar \u00fej\u00e1lfunar a\u00f0 auka sk\u00e1kstyrk sinn enn frekar. \u00dea\u00f0 er \u00fe\u00f3 \u00f3tv\u00edr\u00e6tt \u00f3kostur a\u00f0 ekki s\u00e9 til sta\u00f0ar fj\u00e1rhagslegur hvati til frekari framfara eftir a\u00f0 st\u00f3rmeistaratitli er n\u00e1\u00f0. Lj\u00f3st er a\u00f0 vilji r\u00e1\u00f0uneytisins stendur til \u00feess a\u00f0 afnema \u00fe\u00e1 skipan m\u00e1la a\u00f0 st\u00f3rmeistarar teljist r\u00edkisstarfsmenn og till\u00f6gur S\u00cd taka mi\u00f0 af \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>Till\u00f6gurnar eru n\u00e1nar tilteki\u00f0 eftirfarandi:<\/p>\n<ul>\n<li>N\u00faverandi kerfi r\u00edkislauna ver\u00f0i lagt ni\u00f0ur en fj\u00e1rh\u00e6\u00f0 \u00feess \u00ed sta\u00f0 greidd \u00e1rlega \u00ed s\u00e9rstakan sj\u00f3\u00f0 sem ver\u00f0i \u00e1 forr\u00e6\u00f0i Sk\u00e1ksambandsins.<\/li>\n<li>Styrktarsamningar (6-36 m\u00e1na\u00f0a) ver\u00f0i ger\u00f0ir vi\u00f0 sk\u00e1kmenn \u00e1 grundvelli ums\u00f3kna Einstaklingsbundnar skyldur og markmi\u00f0 ver\u00f0i skilgreind \u00ed hverjum og einum styrktarsamningi. S\u00e9rst\u00f6k styrkjanefnd\/sj\u00f3\u00f0sstj\u00f3rn ver\u00f0i fali\u00f0 a\u00f0 gera styrktarsamninga vi\u00f0 sk\u00e1kmenn \u00e1 grundvelli reglna sem settar ver\u00f0i \u00fear a\u00f0 l\u00fatandi. Vi\u00f0 ger\u00f0 samningana ver\u00f0i horft \u00e1 \u00e1rangur, virkni og \u00e1stundun s\u00ed\u00f0ustu 12-24 m\u00e1na\u00f0a, sk\u00e1kstyrk og framfarir, sem og framt\u00ed\u00f0ar\u00e1\u00e6tlanir \u00feeirra.<\/li>\n<li>St\u00f3rmeistarar nj\u00f3ti forgangs \u00e1 a\u00f0ra s\u00fdni \u00feeir fram \u00e1 \u00e1rangur, \u00e1stundun og metna\u00f0. Sj\u00f3\u00f0num er ekki \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 styrkja sk\u00e1kmenn me\u00f0 minna en 2350 sk\u00e1kstig. Undantekningar m\u00e1 gera \u00e1 \u00fev\u00ed vi\u00f0 s\u00e9rstakar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur.<\/li>\n<li>Tryggt ver\u00f0i a\u00f0 a.m.k. ein kona nj\u00f3ti styrks \u00e1 hverju \u00e1ri.<\/li>\n<li>Styrkjanefnd skal \u00f3ska eftir sk\u00fdrslu styrk\u00feega \u00e1 a.m.k. \u00e1 eins \u00e1rs fresti \u00fear sem fari\u00f0 er yfir \u00e1rangur og \u00e1stundun og framt\u00ed\u00f0ar\u00e1\u00e6tlanir.<\/li>\n<li>\u00deeir sem gera styrktarsamninga vi\u00f0 Sk\u00e1ksamband \u00cdslands skulu tefla fyrir \u00cdslands h\u00f6nd \u00feegar \u00feess er \u00f3ska\u00f0, taka \u00fe\u00e1tt \u00ed Sk\u00e1k\u00feingi \u00cdslands og tefla \u00e1 Reykjav\u00edkursk\u00e1km\u00f3tinu nema a\u00f0 gildar \u00e1st\u00e6\u00f0ur hamli \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku.<\/li>\n<li>Ger\u00f0ar ver\u00f0i l\u00e1gmarkskr\u00f6fur um taflmennsku, sem \u00fe\u00f3 ver\u00f0i ekki endilega mi\u00f0a\u00f0ar vi\u00f0 sama sk\u00e1kafj\u00f6lda fyrir alla styrk\u00feega ef sumir taka \u00ed sta\u00f0inn \u00e1 sig r\u00edkari skyldur a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti.<\/li>\n<li>Styrktarsj\u00f3\u00f0urinn m\u00e1 styrkja \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum m\u00f3tum s\u00e9u \u00feau talin l\u00edkleg til a\u00f0 efla sk\u00e1kmanninn.<\/li>\n<li>Stj\u00f3rn S\u00cd leggi til breytingar \u00e1 l\u00f6gum S\u00cd og regluger\u00f0um S\u00cd \u00fear sem fyrirkomulagi\u00f0 ver\u00f0i \u00fatf\u00e6rt og a\u00f0laga\u00f0 a\u00f0 \u00feeim breytingum sem kunna a\u00f0 ver\u00f0a ger\u00f0ar \u00e1 landsl\u00f6gum og regluger\u00f0um.<\/li>\n<\/ul>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eftirfarandi t\u00f6lvup\u00f3stur var sendur fyrr \u00ed dag til ne\u00f0angreindra a\u00f0ila. A\u00f0ildarf\u00e9laga Sk\u00e1ksambands \u00cdslands Atvinnust\u00f3rmeistara F\u00e9lag \u00edslenskra st\u00f3rmeistara Sk\u00f3lastj\u00f3ra og stj\u00f3rnar Sk\u00e1ksk\u00f3la \u00cdslands Stj\u00f3rnar Launasj\u00f3\u00f0s \u00ed sk\u00e1k Formenn fastanefnda S\u00cd Me\u00f0fylgjandi eru meginefni tillagna Sk\u00e1ksambandsins sem ver\u00f0ur skila\u00f0 til r\u00e1\u00f0uneytisins \u00ed byrjun mars 2023. Ykkur er gefin kost \u00e1 koma \u00e1 framf\u00e6ri athugasemdum og \u00e1bendingum fyrir [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":816,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-2619","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/skak.is\/skaksamband\/wp-content\/uploads\/sites\/8\/2019\/08\/Skaksamband-logo_med_frettum.png?fit=%2C&ssl=1","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2619","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2619"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2619\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2620,"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2619\/revisions\/2620"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/media\/816"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2619"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2619"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skak.is\/skaksamband\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2619"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}