Meistaramót TRUXVA hefst kl. 18:30

Meistaramót Truxva verður haldið mánudagskvöldið 29. maí, í skáksal Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. Mótið er nú haldið í sjöunda sinn og er opið öllum skákmönnum. Taflið hefst stundvíslega klukkan 18:30. Mótið fer nú fram annan í hvítasunnu eins og hefð er fyrir. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3m+2s. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Verðlaun: 1.sæti: 25.000 kr. … Halda áfram að lesa: Meistaramót TRUXVA hefst kl. 18:30