Víkingaklúbburinn hefur titil að verja. Mynd: KÖE

Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2019-21 fer fram um helgina. Keppnin hófst 10. október 2019 og lýkur 16. maí 2021. 591 dagur líður á milli fyrstu og síðustu umferðar! Þriðju og fjórðu deild er aflýst en erfitt var að koma þeim einnig fyrir vegna samkomutakmarkana. Staðan eftir fyrri hluta gildir þar sem lokastaða varðandi tilfærslur á milli deilda.

Keppnin mun taka töluverðum breytingum á næsta keppnistímabili. Þá verður tekin upp úrvalsdeild og liðsstig í stað vinninga.

Fyrsta deild

Sex efstu liðin ávinna sér rétt til að tefla í úrvalsdeild að ári.  Liðin í 7.-10. sæti lenda í 1. deild (næstefstu deild) að ári.

Víkingaklúbburinn er efstur með 32 vinninga, SSON er í öðru sæti með 30 vinninga og Huginn er í þriðja sæti með 25½ vinning. Toppbaráttan er væntanlega á milli Víkinga og SSON. Bæði liðin eiga eftir að mæta Hugin en hafa mæst innbyrðis. Þessi þrjú lið ættu að vera örugg með sæti í úrvalsdeild og eru langlíklegust í verðlaunasætin þrjú.

Liðin í 4.-8. eru mjög jöfn og baráttan um að lenda á topp sex og fá keppnisrétt í úrvalsdeild verður örugglega jöfn og spennandi. Aðeins munar 4½ vinningi á fjórða og áttunda sæti.

B-sveitir Víkingaklúbbsins og TR reka lestina og bíður keppni í fyrstu deild að ári.

Mótið á Chess-Results.

Önnur deild

Fjögur efstu liðin fá keppnisrétt í 1. deild að ári en liðin í 5.-8. sæti enda í í 2. deild.

Skákdeild KR er í efsta sæti, en b-sveit Skákfélag Akureyrar og Taflfélag Vestmanneyja eru í 2.-3. sæti. Þessi lið hafa töluverða yfirburði og eru líkleg til að enda á topp fjögur. Þau eiga þó eftir að mætast innbyrðis. Baráttan um fjórða sæti gæti verið hörð en b-sveit Hugins virðist standa best að vígi enda hefur sveitin mætt öllum toppliðunum og er sem stendur í fjórða sæti.

Mótið á Chess-Results.

Þriðja deild

Lokastöðuna má finna á Chess-Results.

Liðin sem enduðu í 1.-4. sæti tefla í 2.deild á næsta keppnistímabili. Liðin sem enduðu í 5.-9. sæti tefla í 3. deild og liðin 10.-14. sæti tefla í fjórða deild.

Fjórða deild

Lokstöðuna má finna á Chess-Results.

Liðin í 1.-3. sæti fá keppnisrétt í 3. deild að ári. Önnur lið tefla í fjórðu deildinni.

Að lokum

Góð úrslitaþjónusta verður um helgina og reynt að færa inn úrslit jafnóðum í báðum deildum. Beinar útsendingar verða frá toppbaráttunni í fyrstu deild.

Minnt er á að ekki er hægt að fara á milli hólfa í sömu umferð. Sérstaklega er áréttað að finni menn til einhverra einkenna sem gætu bent til Covid-19 er stranglega bannað að mæta á skákstað.

Hólfaskipting

Hólf 1 Hólf 2 Hólf 3
1. deild 1. deild 2. deild
TR Faxafen 10
Föstudagurinn, 14. maí, kl. 19:30
Fjölnir-Víka Huginn-TRb Ekki teflt
Breiðablik-TRa SA-Víkb
TG-SSON
Laugardagurinn, 15. maí, kl. 11:00
SSON-Huginn Víkb-Fjölnir 2. deild
TRa-TG TRb-SA
Víka-Breiðablik
Laugardagurinn, 15. maí, kl. 17:00
TG-Víka Fjölnir-Breiðablik 2. deild
Huginn-TRa Víkb-TRb
SA-SSON
Sunnudagurinn, 16. maí, kl. 11:00
SSON-Víkb TRb-Fjölnir 2. deild
TRa-SA Breiðablik-TG
Víka-Huginn