Skákskóli Íslands stendur fyrir skákþjálfaranámskeiði dagana 29. og 30. september. Námskeiðið er opið öllum áhugasömum en er sérstaklega ætlað fyrir þá sem eru að sinna skákþjálfun innan skóla eða skákfélaga – og fyrir þá sem hafa áhuga á því að reyna fyrir sér í skákþjálfun.
Dagskrá námskeiðsins:
Mánudagur 29. september – 19:30 – 21:30
Þriðjudagur 30. september – 19:30 – 21:30
Helstu áhersluatriði á námskeiðinu:
  • Uppsetning kennslustunda og æfinga
  • Kennsluefni – hvað á að kenna og hvernig?
  • Nýting tækninnar í skákkennslu
  • Hópastjórnun, samskipti og agamál
  • Skákþjálfun stúlkna í stórum hópum
  • Kennsla barna með taugaþroskaraskanir
Námskeiðið fer fram í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Einnig verður námskeiðið sent út í gegnum fjarfund fyrir þá sem komast ekki á staðinn.
Fullt námskeiðsgjald er 15.000 kr. en starfandi þjálfarar við skákfélög greiða einungis 10.000 kr. Félögin eru hvött til þess að senda sína þjálfara á námskeiðið.
Viðkomandi fær reikning fyrir námskeiðsgjöldum. Athugið að hægt er að sækja um endurgreiðslu kostnaðar til stéttarfélaga þar sem það á við.

Skráning