Friðrik við upphaf Reykjavíkurskákmótsin 2023 þar sem hann samfagnaði nýjasta kolleganum úr stórmeistarastétt, Vigni Vatnari.

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson verður með fyrirlestur um Friðrik Ólafsson, fyrsta stórmeistara Íslands kl. 19:30 mánudaginn 26. janúar í tilefni Skákdags Íslands, afmælisdags Friðriks.

Fyrirlesturinn fer fram í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Húsið verður opið öllum áhugasömum og kostar ekkert inn.

Gert er ráð fyrir að viðburðurinn standi frá kl. 19:30-21:00.