LANDSLIÐSFLOKKUR 2023
Landsliðsflokkur Íslandsmótsins í skák (Skákþing Íslands) fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði dagana 15.-25. maí 2023
Eftirtaldir tefla í landsliðsflokki 2021.
Nr. | Titill | Hafn | Stig |
1 | GM | Hjorvar Steinn Gretarsson | 2539 |
2 | GM | Hannes Stefansson | 2521 |
3 | GM | Henrik Danielsen | 2501 |
4 | GM | Hedinn Steingrimsson | 2491 |
5 | GM | Vignir Vatnar Stefansson | 2470 |
6 | GM | Johann Hjartarson | 2466 |
7 | GM | Bragi Thorfinnsson | 2431 |
8 | GM | Gudmundur Kjartansson | 2402 |
9 | IM | Hilmir Freyr Heimisson | 2353 |
10 | FM | Aleksandr Domalchuk-Jonasson | 2338 |
11 | WGM | Lenka Ptacnikova | 2099 |
12 | Johann Ingvason | 2076 |
DAGSKRÁ
Teflt daglega frá 15.-25. maí. Taflmennska hefst kl. 15 alla daga nema lokaumferðin sem hefst kl. 13. Ef tveir eða fleiri keppendur verða efstir og jafnir fer fram aukakeppni.
VERÐLAUN
Verðlaun hafa verið hækkuð verulega frá síðasta ári eða úr 550.000 kr. í 850.000 kr.
- 350.000 kr.
- 200.000 kr.
- 150.000 kr.
- 100.000 kr.
- 50.000 kr.
Verðlaunafé skiptist eftir úrslitum aukakeppni um Íslandsmeistaratitilinn fari slík keppni fram. Komi ekki til aukakeppni skiptast verðlaun jafnt á milli þeirra sem hafa jafn marga vinninga.
Samkvæmt 14. grein skáklaga SÍ skal Íslandsmeistarinn í skák eiga sæti í landsliði Íslands (EM landsliða í Svartfjalllandi 2023) og eiga keppnisrétt á næsta EM einstaklinga (Ísrael 2024).
MÓTSREGLUR
TÍMAMÖRK
90 mínútur + 30 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúndna viðbótartími eftir hvern leik.
JAFNTEFLISREGLUR
Takmarkanir eru settar á jafnteflisboð. Hún gengur út á það að ekki er heimilt að bjóða jafntefli fyrr en báðir keppendur hafa leikið 30 leiki. Á því má gera undantekningar sé þráteflt en þá verður að stöðva klukku, kalla á skákstjóra og koma með jafntefliskröfu.
AÐRAR REGLUR
Mæting í skákir: Menn hafa 30 mínútur til að koma sér á skákstað eftir að auglýstur upphafstími er auglýstur – áður en tap er dæmt. Mótshaldarar óska engu að síður eftir því að keppendur séu stundvísir.
Klæðnaður: Ætlast er til að keppendur séu ávallt snyrtilega klæddir. (All the participants should be dressed in a suitable manner).
Töfludráttur: Fer fram degi fyrir mót.
Keppendur geta átt á von á því að það verði leitað á þeim með málmleitartæki (Garret-tækinu) á skákstað bæði við upphaf umferðar og í miðri skák
Stranglega er bannað fyrir keppendur og áhorfendur að koma með tölvur, snjallsíma og snjallúr í skáksal
REGLUR UM AUKAKEPPNI
Séu tveir efstir og jafnir verður teflt til þrautar og eftir sama fyrirkomulagi á Heimsbikarmótinu.
Verði fleiri en tveir efstir og jafnir verður stuðst er við grein 13.2 í reglum FIDE um skákmótahald (https://handbook.fide.com/files/handbook/C02Standards.pdf).
ODDASTIG
- Innbyrðis úrslita
- Flestar sigurskákir
- Sonneborn-Berger
- Koya System
- Hlutkesti
SKÁKSTJÓRN
IA Páll Sigurðsson er yfirdómari landsliðsflokks.
MÓTSSTJÓRN
Stjórn Skáksamband Íslands
ÁFRÝJUNARNEFND
Dómstóll SÍ