Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2023-24 fer fram dagana 12.-15. október nk. Fyrri hlutinn fer fram í Rimaskóla (ath. ekki Egilshöll).
Fyrsta umferð (eingöngu í úrvalsdeild) mun hefjast kl. 19.00 fimmtudaginn 12. október.
Aðrar deildir munu hefjast föstudaginn 13. október kl. 19:00. Síðan verður teflt laugardaginn 14. október kl. 11.00 og kl. 17.30 sama dag. Síðasta umferðin í fyrri hlutanum hefst kl. 11.00 sunnudaginn 15. október. Allar deildir hefjast á sama tíma. Athugið breyttir umferðartímar frá fyrri árum.
Síðasti möguleiki fyrir félagaskipti er 22. september kl. 23:59. Skákmenn án félags og skákstiga eru undanþegnir þeim fresti.
Í úrvalsdeild verða tímamörkin til reynslu í ár 90 mínútur á fyrstu 40 leikina auk þess sem 15 mínútur bætast við á hvorn keppenda eftir 40 leiki + 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik. Í öðrum deildum verður umhugsunartími 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími eftir hvern leik.
Yfirdómari mótsins verður Þórir Benediktsson.
Þátttökugjöld 2023-24 verða óbreytt frá fyrri ári.
• Kvikudeildin 132.000 kr.
• 1. deild kr. 88.000 kr.
• 2. deild kr. 44.000 kr.
• 3. deild kr. 33.000 kr.
• 4. deild kr. 22.000 kr.
SÍ endurgreiðir ferðakostnað innanlands, fyrir þá sem koma langt að. Allt að kr. 30.000 kr. í úrvalsdeild fyrir þá sem tefla allar fimm umferðirnar en kr. 15.000 kr. fyrir aðra í úrvalsdeild og í 1. fyrstu deild gegn framvísun kvittana. Ekki er endurgreiddur ferðakostnaður fyrir aðrar deildir.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn). Skráningarfrestur er til 19. september 2023 í úrvalsdeild, 1. deild, 2. deild og 3. deild en til 5. október í 4. deild.
Síðari hluti mótsins fer fram 29. febrúar – 3. mars 2024.