Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2021-22 fer fram dagana 30. september – 3. október nk. Fyrri hlutinn fer fram í Egilshöllinni, höfuðstöðvum Umf. Fjölnis.
Fyrsta umferð (eingöngu í úrvalsdeild) mun hefjast kl. 19.30 fimmtudaginn 30. september.
Aðrar deildir munu hefjast föstudaginn 1. október kl. 19:30. Síðan verður teflt laugardaginn 2. október kl. 11.00 og kl. 17.00 sama dag. Síðasta umferðin í fyrri hlutanum hefst kl. 11.00 sunnudaginn 3. október.
Keppnin fer fram svo framarlega sem 100 manns eða fleiri megi vera í sama rými.
Síðasti möguleiki fyrir félagaskipti er 10. september kl. 23:59. Skákmenn án félags og skákstiga eru undanþegnir þeim fresti.
Umhugsunartími er 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími bætist við eftir hvern leik.
Þátttökugjöld 2021-22 verða sem hér segir:
- Úrvalsdeild 120.000 kr.
- 1. deild kr. 80.000 kr.
- 2. deild kr. 40.000 kr.
- 3. deild kr. 30.000 kr.
- 4. deild kr. 20.000 kr.
Til frádráttar verður 50% þátttökugjalda fyrir lið í 3.-4. deild á keppnistímabilinu 2019-21 þar sem síðari hlutanum þar var aflýst.
Greiðslur fyrir ferðakostnað eru 30.000 kr. í úrvalsdeild en kr. 15.000 í 1. deild. Ekki er greiddur ferðakostnaður í öðrum deildum.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn). Skráningarfrestur er til 8. september 2021 í úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild en 17. september í 3.-4. deild.
- Skráningarform
- Þegar skráðar sveitir
- Skáklög Skáksambands Íslands (12. grein)
- Reglugerð um Íslandsmót skákfélaga (verður uppfærð fyrir mót)
Skipting í deildir (miðað við að ekkert lið afskrái sig)
| Úrvalsdeild |
| Víkingaklúbburinn |
| Breiðablik |
| Huginn |
| Fjölnir |
| TR-a |
| SA |
| 1. deild |
| SSON |
| TG |
| Víkingaklúbburinn-b |
| TR-b |
| KR |
| TV |
| SA-b |
| Huginn-b |
| 2. deild |
| Fjölnir-b |
| Haukar |
| Hrókar alls fagnaðar |
| TG-b |
| Breiðablik-b |
| Austurland |
| Skákgengið |
| TR-c |
| 3. deild |
| SA-öldungar |
| Víkingaklúbburinn-c |
| TR-d |
| Vinaskákfélagið |
| KR-b |
| SSON-b |
| TV-b |
| Huginn-c |
| 4. deild |
| Önnur lið |






