Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2025-26 fer fram dagana 13.–16. nóvember 2025 í Rimaskóla, Reykjavík.
Mótsupplýsingar:
Fyrsta umferð í úrvalsdeild hefst fimmtudaginn 13. nóvember kl. 19:00. Aðrar deildir hefjast föstudaginn 14. nóvember kl. 19:00. Teflt verður laugardaginn 15. nóvember kl. 11:00 og 17:30, og síðasta umferð fyrri hlutans fer fram sunnudaginn 16. nóvember kl. 11:00. Allar deildir hefjast á sama tíma nema annað sé tekið fram.
Tímamörk:
- Úrvalsdeild: 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leiki, auk 15 mínútna eftir 40 leiki, með 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik.
- Aðrar deildir: 90 mínútur á skákina með 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik.
Þátttökugjöld 2025-26:
- Úrvalsdeild: 140.000 kr.
- 1. deild: 95.000 kr.
- 2. deild: 45.000 kr.
- 3. deild: 35.000 kr.
- 4. deild: 25.000 kr.
Ferðakostnaður:
Skáksamband Íslands endurgreiðir ferðakostnað innanlands fyrir keppendur sem koma langt að. Allt að 30.000 kr. í úrvalsdeild fyrir þá sem tefla allar fimm umferðirnar, en 15.000 kr. fyrir aðra í úrvalsdeild og 1. deild, gegn framvísun kvittana. Enginn ferðakostnaður er endurgreiddur fyrir aðrar deildir.
Skráning:
Skráningarfrestur:
- Úrvalsdeild, 1. deild, 2. deild og 3. deild: 20. október 2025.
- 4. deild: 6. nóvember 2025.
Félagaskipti:
Síðasti möguleiki fyrir félagaskipti er 24. október 2025 kl. 23:59. Skákmenn án félags og alþjóðlegra kappskákstiga eru undanþegnir þessum fresti.
Síðari hluti mótsins:
Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2025-26 er áætlaður dagana 5.–8. mars 2026.
MÓTSREGLUR
Mæta þarf innan 30 mínútna eftir að umferð hefst. Annars er dæmt tap.
Öll notkun rafeindatækja (símar, snjallúr, heyrnartól) er stranglega bönnuð í skáksal. Mælt er með keppendur geymi í bíl eða í geymslu hjá skákstjóra. Að öðrum kosti geta skákstjórar dæmt tap á keppendur.
Skv. nýjum reglum FIDE er liðstjóum að hafa afskipti af einstökum skákum á meðan teflt er. Ekki má gefa ráð um jafntefliboð eða svara spurningum í þá veru. Ef keppendur þurfa nauðsynlega að tala við liðsstjóra (þá um eitthvað annað en um þá skák sem er í gangi) skal gera það í návist skákstjóra.
LÖG OG REGLUR
Mótsstjórn Íslandsmóts skákfélaga: Stjórn SÍ