
Á haustönn mun Jóhanna Björg Jóhannsdóttir aftur standa fyrir skákæfingum fyrir stúlkur í á þriðju hæð í Breiðabliksstúkunni, Kópavogi, á vegum Skákskóla Íslands í samstarfi við Skákdeild Breiðabliks. Námskeiðið fer fram á mánudögum frá 17.30 til 19.00.
Æfingarnar eru ætlaðar áhugasömum skákstelpum sem hafa áhuga á að bæta sig í skák á hinum ýmsu sviðum, en sérstök áhersla verður lögð á að byggja sterkan grunn í byrjunum og taktík.
Jóhanna hefur mikla reynslu úr skákheiminum og hefur lokið þjálfaranámskeiði á vegum Skáksambands Evrópu. Jóhanna að baki á fjögur Ólympíumót með kvennalandsliðinu. Lögð verður áhersla á aukna skákkennslu stúlkna á öllum aldri og hvetja þær til að mæta á æfingarnar, bæta sig jafnt og þétt og hafa gaman af skák.
Skráningargjald fyrir vorönn er 10.000 kr.- en öllum er frjálst að mæta og prófa eina æfingu. Skráning fer fram á staðnum eða í gegnum skráningarform. Frekari upplýsingar má nálgast í gegnum netfangið jbj10@hi.is







