Helgi Ólafsson að tafli.

Helgi Ólafsson mun láta af störfum sem skólastjóri Skákskólans í lok ágúst eftir samfellda veru frá árinu 1996. Því er víst að um mikil tímamót er að ræða en á þessum langa og farsæla ferli hefur Helgi sinnt afreksfólki Íslands í skák af mikilli eljusemi. Skáksamfélagið mun þó enn njóta góðs af kröftum hans en hann verður liðstjóri íslenska liðsins á Ólympíumótinu í september næstkomandi.

Stjórn Skákskólans þakkar Helga kærlega fyrir sín störf.