Ungmennameistaramót Íslands (u22) – Meistaramót Skákskóla Íslands verður haldið dagana 12.–15. desember nk. Teflt verður húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Sigurvegari mótsins tryggir sér keppnisrétt í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands 2026.
Dagskrá mótsins:
- umferð kl. 18:00 fimmtudaginn 12. desember
- umferð kl. 18:00 föstudaginn 13. desember
- umferð kl: 11:00 laugardaginn 14. desember
- umferð kl: 16:00 laugardaginn 14. desember
- umferð kl: 11:00 sunnudaginn 15. desember
- umferð kl: 16:00 sunnudaginn 15. desember
* Hægt er að taka eina hálfs vinnings yfirsetu í 1. – 3. umferð.
Mótið er Íslandsmót ungmenna á aldrinum 17-22 ára en er opið yngri keppendum. Miðað er við að yngri keppendur hafi náð 1700 elo stigum eða meira eða hafi verið meðal verðlaunahafa í flokkum u12, u14 og u16 á Íslandsmóti ungmenna 2024.
Teflt verður um sæmdarheitin Meistari Skákskóla Íslands 2024 og titilinn Ungmennameistari Íslands 2024. Meistari Skákskóla Íslands getur einungis orðið keppandi sem er fæddur árið 2004 eða síðar.
Verði keppendur jafnir að vinningum skal teflt um það hver telst Ungmennameistari Íslands. Mótsstig eru látin gilda um önnur sæti verði keppendur jafnir að vinningum.
Mótsstig:
1. Flestar tefldar skákir
2. Buchholz -1
3. Innbyrðis viðureign
Tímamörk: 90+30 á alla skákina
Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Skráning er til kl. 12:00 fimmtudaginn 12. desember.
Verðlaun:
1. sæti: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 100.000 kr. Þátttökuréttur í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands 2026.
2. sæti: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
3.–5. sæti: Úttekt hjá Chessable.
Stigaflokkaverðlaun:
1900 – 2100 elo:
1. verðlaun: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 40.000 kr.
1700 – 1900 elo:
1. verðlaun: Ferðakostnaður á skákmót erlendis að verðmæti 40.000 kr.
* Einungis er hægt að vinna til verðlauna í einum flokki.