Markús Orri Ó., Mikael Bjarki og Markús Orri J.

Mikael Bjarki Heiðarsson sigraði á Vormóti Skákskólans, sem fram fór um helgina.

Tefldar voru níu umferðir með umhugsunartímanum 15+5. Þátttökurétt höfðu þau ungmenni, fædd 2005 eða síðar, sem höfðu tekið þátt í námskeiðum eða annarri starfsemi Skákskóla Íslands.

Mikael Bjarki og Gunnar Erik

Mikael Bjarki fékk átta vinninga í umferðunum níu. Hann tefldi af miklum krafti og vakti athygli fyrir skynsama tímanotkun og praktíska nálgun í taflmennsku sinni.
Næstir voru Markús Orri Jóhannsson, með sjö vinninga, og Markús Orri Óskarsson með sex og hálfan.

Haukur, Iðunn og Karma

Iðunn Helgadóttir varð efst keppenda með minna en 1800 skákstig. Haukur Víðis Leósson varð næstur og Karma Halldórsson þriðji.

Guðrún Fanney Briem

Guðrún Fanney Briem fékk verðlaun fyrir besta árangur stúlkna.

Efstu keppendur mótsins:
1. Mikael Bjarki Heiðarsson (50 þús. ferðastyrkur)
2. Markús Orri Jóhannsson (30 þús. ferðastyrkur)
3. Markús Orri Óskarsson (20 þús. ferðastyrkur)

u1800
1. Iðunn Helgadóttir (20 þús. ferðastyrkur)
2. Haukur Víðis Leósson (15 þús. inneign á Chessable)
3. Karma Halldórsson (10 þús. inneign á Chessable)

Besti árangur stúlkna
1. Guðrún Fanney Briem (20 þús. ferðastyrkur)

Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands, sá um mótshaldið.

Lokastaðan á Chess-results
Beinar útsendingar