Skákskóli Íslands stendur áhugasömum opinn frá kl. 16:00-18:30 þriðjudaginn 3. júní næstkomandi.

Þar gefst ungmennum, foreldrum og öðrum áhugasömum, kostur á því að kynna sér starfsemi skólans.

Nýtt kennsluefni verður til sýnis og gefst áhugasömum kostur á því að spreyta sig á snúnum viðfangsefnum sem nemendur skólans hafa lagt stund á.

Kennsluefni Skákskólans verður til sýnis

Stigahæsti skákmaður Íslands, stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson, teflir fjöltefli við gesti og gangandi.

Vignir Vatnar Stefánsson – Mynd: Dagur Ragnarsson.

Heitt á könnunni og allir velkomnir!