Opið er fyrir skráningar á námskeið Skákskóla Íslands á vorönn.
Skákskóli Íslands er ætlaður metnaðarfullum ungmennum sem vilja ná enn meiri árangri í skák með afreksmiðuðum æfingum. Hópar skólans eru getuskiptir og unnið er eftir kennsluáætlunum. Nemendur fá aðgang að kennsluefni, heimaverkefnum og upptökum af kennsluefni á læstu svæði á vefnum.
Skákskóli Íslands býður nemendum einnig upp á fjarkennslu.
Nánari upplýsingar um starf Skákskólans má nálgast á vef skólans
Björn Ívar Karlsson
Skólastjóri









