Ótrúleg spenna og sviptingar héldu áfram í úrvaldsdeildinni á Íslandsmóti Skákfélaga. Allt í einu eru vonir Vestmannaeyinga um titil á afmælisárinu raunverulegar eftir frábæra sigra í 6. og 7. umferð. Taflfélag Reykjavíkur hafði stór áhrif á toppbaráttuna með því að leggja KR að velli og koma sér jafnframt í betri stöðu í botnbaráttunni og risinn farinn að rumska! Ljóst er að mikil spenna verður um helgina þegar taflmennskan heldur áfram í úrvaldsdeildinni og aðrar deildir hefja taflmennsku í Rimaskóla, Rósarima 11.

Taflfélag Reykjavíkur – Skákdeild KR

Taflfélag Reykjavíkur náði að fylgja eftir mikilvægum sigri í gær með því að leggja KR-inga að velli. Helgi Áss Grétarsson setti tóninn fyrir TR.

Hvítur er með ógnandi rými og Henrik ákvað að fórna manni hér 13…Bxg4?! en svartur fékk ekki nægar bætur og Helgi hélt góðri stjórn á stöðunni og vann í 27 leikjum.

TR voru sterkir á borðum fimm til sjö og unnu allar skákirnar þar eins og í gær. Margeir lagði Dag að velli í vel útfærðri skák þar sem d-peð Margeirs var stjarnan. Þröstur tefldi einnig þétta skák.

Eftir 40.e5 vinnur aðeins einn leikur beint og Þröstur var vandanum vaxinn, 40…Bxe5 og hvítur getur nánast lagt niður vopn.

Guðmundur Kjartansson tapaði sinni skák og KR minnkaði muninn og það leit út fyrir að Aleksandr Domalchuk-Jonasson væri að tapa sinni skák.

Sasha var búinn að vera í köðlunum lengi vel og hér eftir t.d. 30…Hd7! er hvítur nánast í leikþröng manni yfir og getur ekkert hreyft. Þess í stað kom 30…Kf8?? og hvítur á kraftaverkabjörgun með 31.Bf6!! og jafntefli var samið stuttu síðar.

Tvær skákir nú eftir og TR nægði jafntefli í einni þeirra til að vinna viðureignina. Jón Viktor var með steindautt jafntefli en tók þá óskiljanlega ákvörðun.

56…Kf6?? var arfaslakur í dauðu jafntefli. Eftir 57.Kd5 Hc1 58.Kxc5 Hc3 59.Hd6 Ke7 þurfti Andrei bara að finna…

60.Kxb4 hér og hvítur er með kolunnið tafl. Þess í stað slapp Jón Viktor fyrir horn eftir 60.Hxg6?? og sigur TR tryggður.

Donchenko náði að snúa á Oleksienko í endataflinu. Oleksienko gat einfaldað taflið aðeins fyrr en missti af lúmksri leið Donchenko í tímahraki.

Oleksienko fór að gæla við mátsókn eftir 35.Rf5? en vaknaði upp við vondan draum eftir 35…Dxc4. 36.Df8 virðist þá hættulegt en 36…Dxf1+ snýr taflinu og hvítur er mát. Oleksienko þurfti því að verjast peði undir og tókst það ekki.

Fjölnir – Taflfélag Vestmannaeyja

Vestmannaeyingar hreinlega urðu að vinna þessa viðureign til að eygja möguleika á titlinum. Sögusagnir herma að liðsstjórinn Þorsteinn Þorsteinsson hafi hlaðið í epíska hvatningarræðu fyrir viðureignina.

Bræðrabyltan milli Björns og Braga Þorfinnssona reyndist mikilvæg. Bragi fórnaði peði en lykillinn var skiptamunsfórn Björn sem fékk heilmikið af peðum upp í skiptamuninn og hreinlega lokaði búðinni eftir það.

24.Hxe4! dxe4 25.Bc4+ og svo tók Björn e-peðið.

Dagur Ragnars og Simon Williams skildu jafnir en Simon tefldi skemmtilega eins og hans er venja.

19…Rxg1 var eitthvað sem Simon varð að sjá og eftir 20.Bxe4 Rxh3+ 21.Kg2 þá valdar svartur riddarann með 21…fxe4. Skemmtileg færi en Simon náði ekki að knýja fram vinning.

Abhijeet Gupta, Íslandsvinur, tefldi ekki í fyrri hlutanum og hann lét til sín taka og lagði Paulius að velli í góðri Catalan skák.

Góður sigur hjá Eyjamönnum sem hafa líka betra tiebreak.

Víkingaklúbburinn – Breiðablik

Mikilvægur fallbaráttuslagur hér á ferðinni.

Hilmir Freyr náði í góðan sigur fyrir Breiðablik.

Benedikt Briem virtist gjörsamlega í köðlunum með dýflissu-biskup á h8 en fann varnarleið.

42…Hf3! 43.Ke2 Hf5 44.Hxf7+ Kg8 og svartur nær peðinu á f6 og rétt heldur jafntefli.

Vignir missti niður fræðilegt jafntefli.

Svartur á hér svokallaða Vancura vörn sem Vignir þekkir og hefur áður varist í svipuðu endatafli. Hér missti hann einbeitinguna og 64…Hg5?? tapar en 64…Hf5 hefði haldið jafntefli. Svartur á ekki skákina á g7 og tapar.

Birkir Ísak náði að snúa jafnteflislegu endatafli í vinning og Bárður vann góðan sigur. Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Blika sem líklegast bjargar þeim frá falli endanlega!

Staðan

Vestmannaeyingar orðnir efstir og hafa örlögin í eigin höndum. Vestmannaeyingar eiga eftir að tefla við þrjú neðstu liðin og vinni þeir allar viðureignir er titillinn þeirra. Ljóst er þó að viðureignin við lið TR verður erfitt þar sem liðið er mun sterkari en í fyrri hlutanum.

Í áttundu umferðinni mætast:

Vestmannaeyjar ættu að vera líklegir gegn Víkingum og KR og Fjölnir tefla um hvort liðið á séns í að berjast við Vestmannaeyjar. Breiðablik og TR tefla botnbaráttuslag.

Ljósmyndir(Tómas Tandri)

_D0A4873

Beinar útsendingar (þó með 15 mínútna seinkun) hefjast kl. 19:15.