Staða Taflfélags Garðabæjar styrktist á toppi úrvalsdeildar Íslandsmóts skákfélaga eftir gríðarlega spennandi 7. umferð í gær. Garðbæingar unnu Skákdeild Fjölnis með minnsta mun, 4½-3½. Á sama tíma gerðu helstu andstæðingarnir, Taflfélag Reykjavíkur 4-4 jafntefli við Víkingaklúbbinn. TG hefur 3 stiga forystu á TR. Sveitirnar mætast í dag í 8. umferð af alls 10. Veitt er tvö stig fyrir sigur en eitt fyrir jafntefli. TR þarf nauðsynlega að vinna TG í dag til að halda lífi í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
Úrslit 7. umferðar


TG hefur 13 stig. TR hefur 10 stig. Skákdeild Breiðabliks vann öruggan, 6-2, sigur á Skakfélagi Akureyrar í gær. Þar með er ljóst að Akureyringar falla úr úrveilsdeildinni. Mikil barátta er um bronsið en um það berjast Fjölnir, Víkingaklúbburinn og Breiðablik. Öll liðin hafa 6 stig. Þrjú efstu sætin gefa keppnisrétt á EM taflfélaga sem fram fer í Austurríki í október.

Mótstaflan

Í dag hefst einnig taflmennska í 1.-4. deild. Mótið færist nú úr félagsheimili TR þar sem tvær fyrstu umferðir úrvalsdeildar voru tefldar. Teflt verður í Fjölnishluta Egilshallar. Skákir úrvalsdeildar verða sýndar beint og verður meðal annars finna á Chess24.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar
- Chess-Results
- Myndir (Hallfríður)
- Skáklög Skáksambands Íslands (12. grein)
- Reglugerð um Íslandsmót skákfélaga






