TR vann sigur á Blix í dag. Mynd: HS.

Skjótt skipast veður á lofti á Íslandsmóti skákfélaga. Taflfélag Reykjavíkur hefur náð eins stigs forystu á Íslandsmóti skákfélaga þegar einni umferð er ólokið eftir tvö töp í röð hjá Taflfélagi Garðabæjar. TR vann öruggan, 5½-2½, sigur á Skákdeild Breiðabliks á meðan Íslandsmeistararar Víkingaklúbbsins unnu Taflfélag Garðabæjar með sama mun.

Úrslit 9. umferðar

TR hefur 14 stig og TG hefur 13 stig. Auk þess hefur TR 45 vinninga á meðan TG hefur 42½ vinning. TR mætir Fjölni á meðan TG teflir við SA. Þess má geta að eina viðureignin sem TR hefur tapað í keppninni var einmitt gegn Fjölni í fyrri hlutanum.

Sigur dugar TR alltaf á morgun til að hreppa Íslandsmeistaratitilinn. Jafntefli, 4-4, dugar að öllum líkindum – nema að TG vinni SA 7-1 eða með meiri mun. Ef TR tapar hins vegar dugar TG að vinna SA.

Fjölnir og Víkingaklúbburinn berjast um þriðja sæti sem gefur keppnisrétt á EM taflfélaga sem fram fer í Austurríki í október nk. Bæði liðin hafa 10 stig. Fjölnismenn hafa þremur vinningum meira og dugar því að öllum líkindum að ná sama stigafjölda og Íslandsmeistaranir í lokaumferðinni. Víkingar tefla við Breiðablik.

Staðan

1. deild

Taflfélag Vestmannaeyja er í forystu með 11 stig. Skákdeild KR er í öðru sæti með 9 stig og b-sveit Skákfélags Akureyrar er í þriðja sæti með 8 stig. Efsta sætið gefur sæti í úrvalsdeild að ári.

TV dugar jafntefli gegn b-sveit TG í lokaumferðinni til að tryggja sér keppnisrétt í úrvalsdeildinni. Tap getur þýtt að KR, sem teflir við SA-b á morgun, hirði af þeim efsta sætið.

Mótstaflan

2. deild

B-sveit Breiðabliks er í öryggri forystu með 12 stig og hafa hefur þegar tryggt sér keppnisrétt í 1. deild. Hrókar alls fagnaðar eru í öðru sæti með 8 stig. Skákgengið og Skákdeild Hauka eru í 3.-4. sæti með 7 stig. Þess má geta að Hrókar tefla við Skákgengið í lokaumferðinni. Það er því mikil spenna hvaða sveit fylgir b-sveit Blika upp í fyrstu deild.

Mótstaflan

3. deild

D-sveit Taflfélags Reykjavíkur er á toppnum með 12 stig og hefur þegar tryggt sér keppnisrétt í 2. deild að ári. B-sveit Skákfélags Akureyrar og Vinaskákfélagið eru í 2.-3. sæti með 10 stig. Sveitirnar mætast á morgun. SA-b dugar jafntefli til að tryggja sér keppnisrétt í 2. deild en Vinaskákfélagið þarf á sigri að halda.

Mótstaflan

4. deild

Skákfélag Sauðárkróks er í forystu með 12 stig og hefur tryggt sér keppnisrétt í 3. deild að ári. Taflfélag Reykjavíkur e-sveit er í öðru sæti með 10 stig. TR-e dugar jafntefli gegn TR-f í lokaumferðinni til að tryggja sér keppnisrétt í 3. deild að ári. C-sveit Breiðabliks og TR-f eru í 3.-4. sæti með 8 vinninga.

Mótstaflan