Talffélag Reykjavíkur varð Íslandsmeistari skákfélaga en keppninni lauk í dag. Taflfélag Garðabæjar varð öðru sæti og Víkingaklúbburinn í því þriðja. Þessi þrjú liða hafa öll tryggt sér keppnisrétt á EM landsliða í haust. Skákdeild KR vann sigur í 1. deild og tryggði sér keppnisrétt í úrvalsdeild að ári.
Úrvalsdeildin
Lokaumferðin var afar spennandi. TR þurfti a.m.k. jafntefli gegn Fjölni til að tryggja sér titilinn. Um tíma leit út fyrir að það vær alls óvíst tap jafnvel mögulegt. TR-ingar náðu hins að vinna sigur með minnsta muni. Svo fór að Víkingar skriðu fram fyrir Fjölni og náðu þriðja sæti og þar með öruggu Evrópusæti.
Úrslit 10. umferðar

Lokastaðan
1. deild
Svo fór að Skákdeild KR náði efsta sætinu af Taflfélagi Vestmannaeyja eftir lokaumferðina en Eyjamenn höfðu haft forystu allt mótið nema á þeim tíma sem það skipti máli. KR fær því sæti í úrvalsdeild að ári. TV lenti í öðru sæti og Skákfélag Selfoss og nágrennis í því þriðja.
B-sveit Víkingaklúbbsins og c-sveit Taflfélags Garðabæjar féllu í 2. deild
2. deild
B-sveit Breiðabliks vann örggan sigur. Sveitin hlaut 12 stig þrátt fyrir tap í síðustu umferð. Skákdeild Hauka náði öðru sæti og sæti í 1. deild eftir frábræran endasprett og æsispennandi baráttu í lokaumferðinni. Hrókar alls fagnaðar enduðu í 3. sæti.
B-sveit Skákdeildar Fjölnis og d-sveit TG féllu niður í 3. deild.
3. deild
D-sveit Taflfélags Reykjavíkur vann öruggan sigur en sveitin hlaut 14 stig. Vinaskákfélagið fékk 12 stig og fylgir þeim í 2. deild að ári. C-sveit Skákfélags Akureyrar hlaut 10 stig og endaði í 3. sæti.
B-sveit Hróka alls fagnaðar og c-sveit SSON féllu niður í 4. deild.
4. deild
Skákfélag Sauðárkróks vann öruggan sigur en sveitin hlaut fullt hús stiga eða 14 stig alls. E-sveit TR endaði í öðru sæti með 10 stig og 27,5 vinninga þrátt fyri tap gegn f-sveit félagsins í lokaumferðinni. C-sveit Breiðabliks endaði í þriðja sæti.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (FollowChess)
- Chess-Results
- Myndir (Hallfríður)
- Skáklög Skáksambands Íslands (12. grein)
- Reglugerð um Íslandsmót skákfélaga






